spot_img
HomeFréttirShouse, Kotila og Sigmundur bestir

Shouse, Kotila og Sigmundur bestir

13:58
{mosimage}

(Úrvalsliðið. Á myndina vantar þá Brenton, Kotila og Cedric Isom en þeir þrír áttu ekki kost á því að mæta við athöfnina af óviðráðanlegum orsökum. Tómas Hermannsson tók við verðlaunum fyrir hönd Isom.) 

Úrvalslið umferða 16-22 í Iceland Express deild karla var kunngjört í dag en deildarkeppninni lauk í gærkvöldi með heilli umferð. Að þessu sinni voru Snæfellingar fyrirferðamiklir. Justin Shouse leikmaður Snæfells var valinn besti leikmaðurinn, Geoff Kotila þjálfari bikarmeistara Snæfells var valinn besti þjálfarinn og þá var Hlynur Bæringsson einnig í liðinu.  

Þeir Páll Axel Vilbergsson, Grindavík, og Brenton Joe Birmingham, Njarðvík, voru einnig í liðinu ásamt Þórsaranum Cedric Isom. Sigmundur Már Herbertsson var valinn besti dómari umferðanna en þetta er í annað sinn í vetur sem hann er valinn besti dómarinn. Sigmundur dæmir fyrir Ungmennafélag Njarðvíkur. 

Úrvalsliðið 

Justin Shouse, Snæfell

Cedric Isom, Þór Akureyri

Brenton Joe Birmingham, Njarðvík

Páll Axel Vilbergsson, Grindavík

Hlynur Bæringsson, Snæfell

 

Besti leikmaður: Justin Shouse
Besti þjálfari: Geoff Kotila
Besti dómari: Sigmundur Már Herbertsson 

[email protected]

Fréttir
- Auglýsing -