12:26
{mosimage}
(Reynsla Birnu gæti vegið þungt í kvöld!)
Keflavík getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í kvennakörfuknattleik í kvöld þegar þriðja úrslitaviðureign liðsins gegn KR fer fram í Toyotahöllinni í Keflavík. Leikurinn hefst kl. 19:15 en staðan er 2-0 fyrir Keflavík og með sigri mun sá stóri hefjast á loft.
Fyrsta viðureign liðanna var spennuþrungin þar sem Keflavík fór með nauman 82-81 sigur af hólmi en munurinn á liðunum var heldur meiri í Vesturbænum á þriðjudagskvöld þar sem Keflavík vann 71-84. TaKesha Watson var valin besti maður leiksins í fyrsta leiknum og Pálína María Gunnlaugsdóttir var valin besti leikmaðurinn í öðrum leiknum.
Þeir leikmenn sem valdir eru bestu leikmenn í hverri úrslitaviðureign fá að gjöf farmiðaúttekt hjá Iceland Express.
Vesturbæingar hafa verið illviðráðanlegir í fráköstunum en Keflvíkingar hafa svarað því með grimmum varnarleik og hröðum sóknum. Jón Halldór Eðvaldsson þjálfari Keflavíkur var vissulega sáttur við sigurinn í DHL-Höllinni en sagði að til þess að Keflvíkingar yrðu Íslandsmeistarar á morgun þá þyrfti liðið að leika mun betur en það gerði í öðrum leiknum.
,,Ef við mætum ekki í kvöld þá töpum við. Það er bara þannig. Við þurfum að leggja miklu meira á okkur heldur en við gerðum í þessum öðrum leik. Það gerist bara á móti góðu liði eins og KR að þegar þú slakar eitthvað á þá skjóta þær þig bara í kaf,” sagði Jón Halldór og kvaðst spenntur fyrir kvöldinu.
,,Það væri stórkostlegt að geta klárað þetta heima í kvöld en til þess að það sé hægt verðum við heldur betur að leggja á okkur.”
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir hefur verið grimm í liði KR í vetur en undanfarið hefur hún glímt við smávægileg ökklameiðsli. Verður hún klár í slaginn í kvöld?
,,Já, já, ég er búin að vera hjá Kollu sjúkraþjálfara undanfarna daga og fengið góða meðferð þannig að ökklinn ætti að vera tilbúinn. Annars harkar maður smá meiðsli af sér á þessum tímapunkti,” sagði Sigrún sem var með 17 stig og 17 fráköst í síðasta leik gegn Keflavík.
Keflvíkingar hafa enn ekki tapað á heimavelli þessa leiktíðina en er KR fært um að halda sér inni í keppninni með því að færa Keflavík sinn fyrsta ósigur á heimavelli í kvöld?
,,Við sýndum það í síðasta leik í Keflavík að það er allt hægt, sigurinn þar gat dottið báðum megin. Við höfum engu að tapa og árangur liðsins miklu betri en margir þorðu að vona í upphafi, en það sýnir hversu sterkt lið við erum með. Við förum í Keflavík til að sækja sigur og ef viljinn er nógu mikill er allt hægt,” sagði Sigrún.
{mosimage}
(Þrátt fyrir ungan aldur hefur Sigrún skipað sér á sess með fremstu leikmönnum landsins)
Íslandsmeistaratitlar liðanna
Keflavík (12)
1987-1988: Keflavík
1988-1989: Keflavík
1989-1990: Keflavík
1991-1992: Keflavík
1992-1993: Keflavík
1993-1994: Keflavík
1995-1996: Keflavík
1997-1998: Keflavík
1999-2000: Keflavík
2002-2003: Keflavík
2003-2004: Keflavík
KR (13)
1960-1961: KR
1976-1977: KR
1978-1979: KR
1979-1980: KR
1980-1981: KR
1981-1982: KR
1982-1983: KR
1984-1985: KR
1985-1986: KR
1986-1987: KR
1998-1999: KR
2000-2001: KR
2001-2002: KR



