HomeFréttirSiena hafði sigur í fyrsta leiknum

Siena hafði sigur í fyrsta leiknum

20:49

{mosimage}

Jón Arnór Stefánsson og félagar í Lottomatica Roma biðu lægri hlut í fyrsta leik félagsins í úrslitaeinvíginu um ítalska meistaratitilinn, 85-73. Jón Arnór lék í 23 mínútur og skoraði 5 stig.

Leikurinn var jafn og spennandi frá upphafi og höfðu gestirnir frá Róm þó heldur frumkvæðið til að byrja með og komust m.a. fimm stigum yfir, 17-22 og leiddu eftir fyrsta fjórðung 22-19. Sami barningurinn var í öðrum leikhluta en heimamenn náðu þó að komast framúr og voru alltaf skrefinu á undan og leiddu í hálfleik 43-39. Jón Arnór lék í 14 mínútur í fyrri hálfleik og skoraði öll 5 stig sín þá.

Sienamenn höfðu áfram undirtökin og voru 6 stigum yfir eftir þriðja leikhluta, Romamenn héldu áfram að herja á þá og héldu í við þá fram á 37. mínútu þegar staðan var 72-68. Eftir það tóku heimamenn leikinn í sínar hendur og enduðu með 12 stiga sigri 85-73.

Terrel McIntyre var stigahæstur Sienamanna með 22 stig, hitti úr 12 af 15 skotum sínum í leiknum, klikkaði aðeins á 3 þriggja stiga skotum. Næstur honum í stigaskorinu var Ksistof Lavrinovic með 13 stig.

Erazem Lorbek var stigahæstur Rómverja með 21 stig en David Hawkins og Ibrahim Jaaber skorðu 13 hvor. Jón Arnór skoraði eins og fyrr segir 5 stig, hitti úr öðru tveggja stiga skotinu og einu af fjórum þriggja stiga og þá tók hann fjögur fráköst.

Annar leikur liðanna fer fram á fimmtudag á heimavelli Siena en sigra þarf í fjórum leikjum til að tryggja sér titilinn.

[email protected]

Mynd: www.virtusroma.it

 

Fréttir
- Auglýsing -