HomeFréttirÁgúst tekur slaginn með Hamri í 1. deild

Ágúst tekur slaginn með Hamri í 1. deild

07:00
{mosimage}

 

(Ágúst Björgvinsson) 

 

Ágúst Sigurður Björgvinsson verður áfram með karlalið Hamars á næstu leiktíð og tekur slaginn með félaginu í 1. deild en liðið féll ásamt Fjölni úr Iceland Express deildinni á síðustu leiktíð. Ágúst staðfesti þetta í samtali við Karfan.is og að kapparnir Marvin Valdimarsson og Svavar Páll Pálsson yrðu áfram í herbúðum félagsins.

 

,,Ég ætla að halda áfram í Hveragerði á næstu leiktíð. Ég tók óvænt við liðinu í nóvember á síðasta ári af Pétri Ingvarssyni og það var ekki auðvelt að taka við af þjálfara sem var búinn að vera lengi hjá félaginu og gerði þar flotta hluti. Mér fannst ég þurfa að gefa mér og liðinu í það minnsta eitt ár til viðbótar til að koma mínum hugmyndum á framfæri,” sagði Ágúst í samtali við Karfan.is

 

,,Það eru rosalega efnilegir strákar hjá Hamri og framtíðin er því björt. Bakvörðurinn Lárus Jónsson fer í nám til Danmerkur en þeir Svavar Páll og Marvin verða áfram hjá liðinu sem er gleðiefni því þessir strákar eru góðir úrvalsdeildarleikmenn og ég hef fulla trú á því að þeir komi inn af miklum krafti í næstu leiktíð,” sagði Ágúst en ætla Hamarsmenn að tefla fram erlendum leikmanni/mönnum í 1. deildinni á næstu leiktíð?

 

,,Ég tek annað hvort inn erlendan leikmann eða spila sjálfur,” sagði Ágúst og glotti við tönn enda ávallt stutt í gamanið þó Ágúst sé alvörugefinn þjálfari.

 

[email protected]

Fréttir
- Auglýsing -