spot_img
HomeFréttirSara Pálmadóttir: Hef sjaldan eða aldrei liðið eins vel í líkamanum

Sara Pálmadóttir: Hef sjaldan eða aldrei liðið eins vel í líkamanum

07:00

{mosimage}
(Sara hefur leikið með Haukum undanfarin þrjú tímabil)

Haukar verða án miðherjans Söru Pálmadóttur næsta vetur en Ísfirðingurinn hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna og hefur hún því leikið sinn síðasta leik. Sara segir við heimasíðu Hauka að meiðsli undanfarinna ára hafi knúið hana til að hætta.

,,Ég er búin að vera í körfu í 9 ár og af þeim hef ég verið að kljást við meiðsli 7 þeirra,” sagði Sara við heimasíðu Hauka. ,,Ég hef ekkert spilað í tvo mánuði og hef sjaldan eða aldrei liðið eins vel í líkamanum. Ég verð kannski aðeins með í sumar en svo ekki meir.”

Sara varð Íslandsmeistari með Haukum árin 2006 og 2007 en hún var einn þeirra leikmanna sem vann fimmfalt með Haukum keppnistímabilið 2006-07.

[email protected]

Mynd: Emil Örn Sigurðarson

Fréttir
- Auglýsing -