13:00
{mosimage}
(Fyrrverandi NBA dómarinn Tim Donaghy enn í sviðljósinu)
David Stern hefur unnið vel og skipulega í því að koma NBA deildinni á þann stall sem hún er í heiminum í dag. Eitt er að markaðssetja góða vöru með hetjur eins og Jordan, Magic og Bird í fararbroddi. Annað er að gera það með minni spámenn.
Dómarinn Tim Donaghy viðurkenndi fyrir nokkru fyrir rétti að hann hafði haft rangt við sem NBA-dómari, m.a. með því að þiggja fé frá aðilum sem veðjuðu á úrslit NBA leikja og að veðja á leiki sem hann dæmdi. Þetta mál kom NBA í nokkrun vanda. Hann hefur ekki enn hlotið dóm en hann gæti orðið langur.
Nú er meistari Stern og deildin hans kominn í meiri vanda. Því fyrrverandi dómarinn Donaghy hefur sagt að forsvarsmenn NBA deildarinnar þrýstu á dómara til þess að hafa áhrif á það að ,,réttu” liðin kæmust áfram í úrslitakeppninni og að svokallaðir stjörnuleikmenn myndu ekki lenda í villuvandræðum.
Trúverðugleiki Donaghy er ekki mikill um þessar mundir og því hafa flestir tekið ásökunum hans með mikilli varúð.
Hann á að hafa sagt að í maímánuði 2002 hafi tveir dómarar tekið sig til og ,,aðstoðað” lið sem var undir 2-3 í sjö leikja seríu. Glöggir menn og aðrir hafa komist að þeirri niðurstöðu að hér sé um að ræða seríu á milli Lakers og Kings.
Lakers unnu sjötta leikinn og síðan oddaleikinn. Í fjórðu lotu í umræddaum sjötta leik þá fengu Lakers 27 vítaskot og Kings aðeins 9. Það var margt annað skrýtið sem gerðist í þessum leik. Þeir sem sáu þennan leik eru enn að ræða um svokallaðir draugavillur sem Vlade Divac fékk og aðrar ótrúlegar villur sem dæmdar voru á Kings í þessum leik. Almennt tala NBA-fræðingar um að þetta sé verst dæmdi leikur í sögu NBA.
Þrátt fyrir að trúverðugleiki Donaghy sé enginn þá vilja margir sem sáu umræddan skrípaleik á milli Kings og Lakers árið 2002 að ásakanir hans um leikinn verði rannsakaðar. Þessir aðilar og aðrir NBA-fræðingar hafa sagt að svokallað ,,Spygate” mál í NFL sé smámál við þá ormagryfju sem Donaghy hefur hugsanlega opnað.
Mynd: Getty Images




