06:00
{mosimage}
(Guðbjörg Sverrisdóttir leikmaður U16 ára liðsins á NM í Solna fyrir skemmstu)
Rob Hodgson þjálfari U16 kvenna hefur valið lokahóp sinn fyrir C keppni EM í Mónakó en mótið fer fram dagana 14. til 19. júlí n.k. Ísland leikur í riðli með Albaníu og Gíbraltar en í hinum riðlinum eru Skotar, Möltumenn og heimamenn í Mónakó. Þetta kemur fram á www.kki.is
Þeir 12 leikmenn sem Rob valdi að þessu sinni eru;
Bergdís Ragnarsdóttir, miðherji, Fjölnir
Berglind Gunnarsdóttir, bakvörður, Snæfell
Dagmar Traustadóttir, bakvörður, Njarðvík
Elma Jóhannsdóttir, framherji, KR
Guðbjörg Sverrisdóttir, bakvörður, Haukar
Heiða Björg Valdimarsdóttir, framherji, Njarðvík
Heiðrún Kristmundsdóttir, bakvörður, KR
Hrafnhildur Sif Sævarsdóttir, miðherji, Snæfell
Ína María Einarsdóttir, bakvörður, Njarðvík
Rannveig Ólafsdóttir, bakvörður, Haukar
Sara Mjöll Magnúsdottir, framherji, SnæfellT
elma Lind Ásgeirsdóttir, bakvörður, Keflavík
Níu þessara leikmanna léku með U16 liðinu á NM í Solna í byrjun maí en þeir þrír leikmenn sem bætast í hóp að þessu sinni eru Bergdís Ragnarsdóttir frá Fjölni – en hún er þar með fyrsti kvenmaður sem valin er í landslið hjá KKÍ frá Ungmennafélaginu Fjölni í Grafarvogi, Heiða Björg Valdimarsdóttir frá Njarðvík sem einnig mun leika sína fyrstu landsleiki og Sara Mjöll Magnúsdóttir úr Snæfell en Sara Mjöll lék með U16 kvenna síðasta vor.
Mynd: Jón Björn Ólafsson, [email protected]



