15:24
{mosimage}
Könnun hefur verið í gangi hér á Karfan.is síðustu daga og er spurt hvar lesendur telji að bakvörðurinn snjalli Jakob Örn Sigurðarson muni leika á næstu leiktíð.
59,2% svarenda telja að Jakob fái samning erlendis en 40,8% telja að Jakob muni leika á Íslandi á næstu leiktíð.
Hvað verður á endanum er fróðlegt að sjá en nú höfum við sett inn nýja könnun á síðuna og að þessu sinni spyrjum við:
Hvernig metur þú möguleika Íslands á að næla sér í A-sæti meðal Evrópuþjóða í karla- og kvennaflokki?




