spot_img
HomeFréttirStórsigur íslensku stúlknanna

Stórsigur íslensku stúlknanna

15:35

{mosimage}

Guðbjörg Sverrisdóttir var stigahæst í dag 

U16 ára lið kvenna vann stórsigur á liði Gíbraltar nú fyrir stundu, 108-24. 84 stiga sigur en þó ekki stærsti sigurinn í sögunni hjá U16 ára liðinu en stærsti sigurinn hingað til var gegn Gíbraltar 2002, 86 stig. Guðbjörg Sverrisdóttir var stigahæst í dag með 24 stig auk þess sem hún tók 9 fráköst. Allir leikmenn Íslands skoruðu í dag.

Bergdís Ragnarsdóttir var með 15 stig og 9 fráköst og Heiðrún Kristmundsdóttir skoraði 12.

Liðið mætir Albaníu á morgun og er það úrslitaleikur um sigur í riðlinum.

[email protected]

Mynd: www.vf.is

Fréttir
- Auglýsing -