13:19
{mosimage}
(Tony Allen)
Meistarar Boston Celtics hafa gert nýja samninga við bakverðina Eddie House og Tony Allen.
House skoraði 7.5 stig og Allen 6.6 stig á síðasta tímabili en hlutverk þeirra minnkaði afar mikið í úrslitakeppninni.
Boston hefur misst James Posey til New Orleans og þeir Sam Cassell og P.J. Brown eiga enn eftir að ákveða hvað þeir gera næsta vetur.
Mynd: AP



