Fullt nafn: Ólöf Helga Pálsdóttir
Aldur: 23 ára, orðið frekar viðkvæmt mál
Félag: UMFG
Hjúskaparstaða: á herbergisfélaga að nafni Sirrý Stella
Happatala: 7
Hvenær hófst þú að stunda körfubolta og hvar? Eitthvað um 8-9 ára aldurin í Grindavík með strákum.
Hver var fyrsta fyrirmyndin þín í körfunni? Mamma og Gummi Braga
Hverjir eru bestu íslensku leikmennirnir í Iceland Express-deild karla og kvenna og 1. deild karla? Lalli frændi, Hildur Sig., er ekki alveg klár á 1. deild karla
Besti erlendi leikmaðurinn sem leikur í Iceland Express-deild karla og kvenna og 1. deild karla? Adama Darboe og Kesha (TaKesha Watson) enn og aftur no comment í 1. deild karla
Efnilegasti leikmaður landsins um þessar mundir? Ingibjörg Jakobsdóttir
Hver var fyrsti þjálfarinn þinn? Bergur Eðvarsson heitinn
Besti þjálfarinn á Íslandi í dag? Ágúst Björgvinsson
Uppáhals NBA leikmaðurinn þinn? Kevin Garnett núna, svo voru náttúrulega MJ, Larry Bird og Dennis Rodman í miklu uppáhaldi. Dennis Rodman var vanmetinn, of mikið tekið eftir karakternum frekar en leikmanninum, ótrúlegur varnarmaður og frákastari.
Besti leikmaður NBA deildarinnar í dag? LeBron James
Hefur þú farið á NBA leik? Ef já, hvaða leik? Nei því miður, var alltaf svo abbó þegar frændur minir Lalli og Jóhann fengu alltaf að fara.
Sætasti sigurinn á ferlinum? Þegar við urðum bikarmeistar í vetur, yndislegri tilfinningu hef ég ekki fundið fyrir.
Sárasti ósigurinn? Þegar ég var í stúlknaflokk og við höfðum unnið allt yfir veturinn og töpuðum svo fyrir norsku liði, það var áfall fyrir lið sem aldrei tapaði.
Þín uppáhalds íþrótt að frátöldum körfubolta? Fótbolti klárlega
Með hvaða félögum hefur þú leikið? UMFG, Sheridan Panthers og Spirallen í Danmörku
Uppáhalds:
kvikmynd: Godfather, Dr. Lovestrange and how i learned to stop worrying and love the bomb. Dark Knight
leikari: Jack Nicholson.
leikkona: Meryl Streep
bók: Glæpur go refsing eftir Dostojevski
matur: mexikanskur og sushi
matsölustaður: sushi barinn í iðnó og Argentínalag: öll lög með I´m not Einstein
hljómsveit: I´m not Einstein
staður á Íslandi: Hvammur í fljótum og Vopnafjörður
staður erlendis: Köben er æði, svo líka Dundee í Skotlandi
lið í NBA: Boston
lið í enska boltanum: Man Utd. Er að horfa á MUTV núna!!
hátíðardagur: Jólin
alþingismaður: Össur Skarphéðins
alþingiskona: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
heimasíða: Karfan.is, fotbolti.net, surfthechannel.com og myspace
Hvernig undirbýrð þú þig fyrir leiki? Borða vel 2-3 tímum fyrir leik og drekk mikið vatn, afslöppun en ekki of mikil
Hvort má læra meira af sigur- eða tapleikjum? Bæði, maður lærir af mistökunum í báðum en maður lærir hve sæt tilfinningin er af sigri og hve mikið þig langar í það aftur og einnig hve sárt er að tapa.
Furðulegasti liðsfélaginn? Jovana Jankovic er furðulegt apparat, einnig Petrúnella Skúladóttir, báðar mjög sérstakar en yndislegar
Besti dómarinn í IE-deildinni? Jón Guðmundsson
Erfiðasti andstæðingurinn? Bara stóru stelpurnar sem eru haus stærri en ég þegar ég þarf að spila undir körfunni.
Þín ráð til ungra leikmanna? Hafa gaman að því sem þið eruð að gera og elta draumana annars sjáið þið eftir því. Einnig að æfa vel.
Að hverju viltu spyrja þann sem verður næst í 1 á 1?
Hvað finnst þér um handbolta?



