14:30
{mosimage}
Ísraleski körfuknattleiksþjálfarinn Ralph Klein lést í gær 77 ára að aldri að sökum krabbameins. Ralph þessi náði frábærum árangri sem þjálfari á sinni tíð. Þá kom kappinn til Íslands og hélt þjálfaranámskeið undir lok níunda áratugarins.
Klein var fæddur í Þýskalandi en var þjóðhetja í Ísrael þar sem hann lék og þjálfaði með Maccabi Tel-Aviv. Hann var fyrirliði landsliðsins þar til hann lagði skóna á hilluna 1965. Sem þjálfari Maccabi vann hann 14 deildartitla og 10 ríkistitla en hann þjálfaði einnig landslið Ísraels og Þýskalands.
Pétur Hrafn Sigurðsson var framkvæmdastjóri KKÍ þegar Klein kom á eigin vegum til að halda námskeið og taldi Pétur að þetta væri eitt stærsta nafn sem komið hefur til að halda slíkt námskeið á Íslandi. Pétur sagði einnig að fyrir hann sem ungan og óreyndan framkvæmdastjóra hafi verið frábært að hitta slíkan mann sem var hafsjór af fróðleik. Hann mundi sérstaklega eftir því að Klein sagði frá því hvernig Ísraelar komu körfuboltanum á kortið í Ísrael en íþróttin var mjög lítil þar til að byrja með. Körfuknattleikssambandið samdi við sjónvarpsstöð um að sýna leikina, sjónvarpsstöðinni að kostnaðarlausu. Leikirnir fóru svo bara fram þegar sjónvarpsstöðinni hentaði, sama hvort það var klukkan 9 á laugardagsmorgni eða 22:30 á föstudagskvöldi. Smá saman varð þetta svo þannig að húsmæðurnar sem settust niður eftir langan dag heimafyrir fóru að læra nöfn leikmanna og fylgjst með og áhuginn breiddist út. Þegar Klein kom til Íslands var þetta orðið þannig í Ísrael að körfuknattleikssambandið sagði sjónvarpsstöðvunum hvenær þær ættu að mæta til að sýna leikina og það sem meira var, sjónvarpsstöðvarnar borguðu fyrir.
Ehud Olmert forsætisráðherra Ísraels lýsti yfir djúpri sorg vegna fráfalls Klein.
Mynd: Avi Kedmi




