14:48
{mosimage}
(Signý Hermannsdóttir gerði 11 stig og tók 19 fráköst í íslenska liðinu í dag)
Þriðji leikur íslenska kvennaliðsins á Norðurlandamótinu fór fram í dag þar sem Íslendingar máttu sætta sig við ósigur gegn Finnum og sinn þriðja ósigur í röð á mótinu. Lokatölur leiksins voru 46-57 Finnum í vil. Stigahæstar í íslenska liðinu voru þær Helena Sverrisdóttir og Signý Hermannsdóttir báðar með 11 stig.
Signý var grimm í teignum og tók auk þess 19 fráköst í leiknum. Finnar leiddu í hálfleik 20-28 og unnu þriðja leikhluta 11-18 en íslenska liðið klóraði í bakkann í fjórða leikhluta og vann hann 15-11 en það dugði ekki til.
Finnska liðið hefur lokið keppni á mótinu en það íslenska á einn leik fyrir höndum á morgun á síðasta keppnisdegi mótsins þegar liðið mætir gestgjöfunum í Danmörku. Leikurinn hefst kl. 13.30 að íslenskum tíma.




