8:56
{mosimage}
Íslenska U-16 ár landsliðið leikur gegn Portúgal í dag klukkan 11:45 að íslenskum tíma.
Sigurliðið úr þessum leik mun leika gegn sigurliði úr viðureign Austurríki og Makdedóníu um 13. sætið á mótinu. Tapliðin úr þessum leikjum mætast í leik um 15. sætið.
Eins og áður hefur komið fram eru 23 þjóðir í B-deild Evrópukeppninnar og margar stórþjóðir þar á meðal. Það sýnir þá miklu breidd sem er í Evrópukörfuboltanum að þjóðir eins og Þýskaland, Búlgaría, Slóvenía, Svartfjallaland, Bosnia, Eistland og nokkrar til viðbótar eru í B-deildinni.
Í A-deildinni eru 16 þjóðir og það er hægt að fylgjast með gangi mála í A-deildinni hér en mótið er í gangi á sama tíma og B-deildin.
Mynd: [email protected]



