spot_img
HomeFréttirFinley semur við Spurs að nýju

Finley semur við Spurs að nýju

15:26

{mosimage}

Hinn margreyndi leikmaður Michael Finley hefur gert nýjan samning við San Antonio Spurs í NBA deildinni. Samningurinn mun vera til tveggja ára og að andvirði 5 milljóna Bandaríkjadala.

Finley sem er 35 ára gamall var byrjunarliðsmaður hjá Spurs í 61 leik á síðasta tímabili og gerði 10,1 stig og tók 3,1 frákast að meðaltali í leik. Finley kom fyrst til Spurs árið 2005 og nú bendir allt til þess að hann muni ljúka ferli sínum hjá félaginu. [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -