HomeFréttirLogi funheitur í Hellinum gegn ÍR (Umfjöllun)

Logi funheitur í Hellinum gegn ÍR (Umfjöllun)

22:56
{mosimage}

(Logi Gunnarsson lék á als oddi í kvöld)

Logi Gunnarsson sá til þess að ÍR-ingar fyndu ekki sinn fyrsta deildarsigur í kvöld þegar fjórða umferðin í Iceland Express deild karla fór af stað. Logi sallaði niður 39 stigum fyrir Njarðvíkinga í 69-73 útisigri í Seljaskóla og skoraði hann því meira en helming stiga þeirra grænu. Njarðvíkingar voru lengi vel að elta heimamenn en með þriggja stiga körfu frá Loga sem breytti stöðunni í 47-48 komust Njarðvíkingar yfir í fyrsta sinn í leiknum og litu ekki um öxl eftir það.
Hreggviður Magnússon var ekki með ÍR í kvöld þar sem hann lá veikur heima með flensu og Slobodan Subasic var á bekknum hjá Njarðvík í borgaralegum klæðum.

Sveinbjörn Claessen kom ÍR í 14-4 á upphafsmínútunum með þrist en Njarðvíkingar mjökuðu sér rólega nær ÍR og lauk leikhlutanum í stöðunni 20-15 fyrir ÍR.

Hinn ungi og efnilegi Andri Freysson stal boltanum snemma í öðrum leikhluta og jafnaði metin fyrir Njarðvík í 22-22 en þá tóku heimamenn leikhlé og að því loknu gerðu ÍR næstu sjö stig leiksins. Á þeim kafla tókst Ómari Sævarssyni að blokka Loga ,,geimgengil“ Gunnarsson með tilþrifum. Strax í næstu sókn hefndi Logi fyrir hávörn Ómars með því að blokka hann strax til baka en Davíð Hreiðarsson annar dómara leiksins dæmdi villu á Loga sem var mjög svo ósanngjörn. Ávallt ljúft þegar bakverðir verja skot frá stóru mönnunum og sérlega pínlegt þegar þeir fá ekki að komast upp með það!

{mosimage}

ÍR leiddi í hálfleik 35-29 í baráttumiklum en nokkuð stirðum fyrri hálfleik. Njarðvíkingar sýndu klærnar strax í síðari hálfleik og komust yfir 47-48 með þriggja stiga skoti Loga Gunnarssonar. Logi var allt í öllu í leik Njarðvíkurliðsins og áttu ÍR fá svör við honum. Staðan eftir þriðja leikhluta var 47-51 og komu gestirnir muninum í 10 stig eða 49-59 snemma í fjórða leikhluta.

Heimamenn í ÍR voru aldrei langt undan en það var Logi sem reiða baggamuninn þrátt fyrir nokkrar góðar jöfnunartilraunir heimamanna á lokasprettinum. Með sigrinum í kvöld eru Njarðvíkingar komnir með 4 stig í 8. sæti deildarinnar en ÍR er á botninum án stiga með Skallagrím.

Eiríkur Önundarson sýndi mestan lit í liði ÍR í kvöld en það var sem heimamenn hefðu ekki úthald í síðari hálfleikinn. Fjórir ósigrar í röð því staðreynd en næsti leikur liðsins er gegn Breiðablik í Smáranum.

Fjórðu umferðinni lýkur svo annað kvöld þegar KR tekur á móti Snæfell, Skallagrímur fær Grindavík í heimsókn og Keflavík mætir nýliðum Breiðabliks.

Tölfræði úr leik ÍR og UMFN er ekki komin á netið.

[email protected]

{mosimage}

{mosimage}

{mosimage}

{mosimage}

{mosimage}

{mosimage}

{mosimage}

{mosimage}

{mosimage}

{mosimage}

{mosimage}

{mosimage}

Fréttir
- Auglýsing -