spot_img
HomeFréttirSubwaybikarinn næstu fjögur árin!

Subwaybikarinn næstu fjögur árin!

16:51
{mosimage}

(Hannes Sigurbjörn, KKÍ t.v. og Gunnar Skúli, Subway t.h.)

Hannes Sigurbjörn Jónsson formaður Körfuknattleikssambands Íslands kynnti í dag stoltur að Subwaybikarinn myndi nú taka við af Lýsingarbikarnum. Subway hefur tekið við keflinu af Lýsingu og mun bikarkeppni KKÍ bera nafnið Subway bikarinn næstu fjögur árin. Hannes sagði á blaðamannafundi KKÍ í dag að sérlega ánægjulegt hefið verið að ná þessum samningi í núverandi efnahagsástandi. Bikarkeppni KKÍ bar nafnið Lýsingarbikarinn síðustu fimm ár en nú hefur orðið breyting á og mikla vonir bundar við Subway af körfuknattleiksáhugamönnum enda tókst Lýsingu mjög vel til með sitt.

,,Þetta sýnir að enn eru til frábær og góð fyrirtæki á Íslandi sem vilja styðja áfram við íþróttahreyfinguna í landinu. KKÍ leggur mikið upp úr góðu samstarfi við sína styrktar- og samstarfsaðila og það er gaman að segja frá því að Subway, rétt eins og íslenskur körfubolti, er að finna víðsvegar um landið,“ sagði Hannes kátur á fundinum í dag.

Gunnar Skúli Guðjónsson framkvæmdastjóri Subway á Íslandi sagði á fundinum að fyrirtækið sæji mikinn hag í því að leggja nafn sitt við bikarkeppni KKÍ og að forsvarsmenn fyrirtækisins væru hæstánægðir með samninginn.

{mosimage}

Nýtt logo bikarkeppninnar var kynnt á fundinum en það hannaði Kristinn Geir Pálsson íþróttastjóri KKÍ.

Eins og þegar hefur komið fram hér á síðunni munu bikarmeistarar Snæfells mæta KR í 32 liða úrslitum og verður það vafalítið stærsti leikur þessarar fyrstu umferðar. Alls voru 35 lið skráð í keppnina frá 29 félögum og 6 B-lið voru skráð til leiks. Sem fyrr er undankeppni þar sem sex lið leika um þrjú sæti í 32 liða úrslitum.

[email protected] 

{mosimage} 

Fréttir
- Auglýsing -