spot_img
HomeFréttirDregið í riðla fyrir Evrópukeppnina

Dregið í riðla fyrir Evrópukeppnina

8:39

{mosimage}

Vlade Divac tók þátt í drættinum 

Úrslit Evrópueppni landsliða karla fer fram í Póllandi á næsta ári og í gær var dregið í riðla.

Nú er ljóst að 15 lið hafa þegar tryggt sér þátttökurétt af þeim 16 sem munu mæta til Póllands.

Riðlaskiptingin lítur svona út:

Riðill A (Poznan)
Makedóníar
Króatía
Ísrael
Grikkland

Riðill B (Gdansk)
Rússland
Sigurvegari forkeppni
Þýskaland
Lettland

Riðill C (Warsaw)
Stóra Bretland
Serbía
Spánn
Slóvenia

Riðill D (Wroclaw)
Pólland
Tyrkland
Litháen
Búlgaría

Eftirtaldar sex þjóðir þjóðir munu berjast um sætið sem er laust. Efsta þjóð hvors riðils munu leika heima og heiman um lausa sætið. Það er ljóst að mikil spenna ríkir fyrir þessum leikjum þar sem nokkrar stórar þjóðir eru að berjast um þetta sæti í B-riðli. Þjóðir eins og Frakkland, Ítalía og Bosnía eru vanar því að vera á meðal þeirra bestu svo það ríkir mikil taugaspenna.

Riðill A
Portúgal
Bosnía og Herzegovína
Belgía

Riðill B
Ítalía
Frakkland
Finnland

Eftirtaldar fjórar þjóðir munu leika um réttinn að halda áfram sem A þjóð. Tvær þjóðir halda sér í A en tvær af þessum þjóðum munu falla niður í B deildina þar sem m.a. íslenska liðið er.

Ungverjaland
Eistland
Tékkland
Úkraína

Á þessu sést hversu gríðarleg breidd er í evrópskum körfubolta þegar margar stórþjóðir sjá jafnvel fram á að komast ekki í úrslitakeppnina og sumar á leiðinni niður í B-deild. Spurning hvort þetta verði til þess að stóru þjóðirnir vilji breyta fyrirkomulaginu og hafa það eins og í knattspyrnunni.

Það tekur nefnilega lágmark 4 ár fyrir þessar þjóðir að eiga aftur séns á því að komast í lokaúrslit ef þau detta niður í B-deild.

Hægt er að lesa allt um þetta hér

www.kki.is

Mynd: Wojtek Figurski

Fréttir
- Auglýsing -