11:28
{mosimage}
(Fannar Helgason)
Aganefnd KKÍ hefur dæmt tvo leikmenn í eins leiks keppnisbann sem tekur gildi á hádegi í dag. Leikmennirnir eru þeir Fannar Helgason Stjörnunni og Sverrir Karlsson leikmaður Fjölnis.
Fannar mun því missa af viðureign Stjörnunnar gegn toppliði KR í Ásgarði í kvöld en bannið fékk Fannar fyrir óprúðmannlega framkomu í leik Stjörnunnar og Þórs Akureyri.
Sverrir Karlsson verður ekki með Fjölni í kvöld sem tekur á móti Hamri í 1. deild karla þar sem hann fékk eins leiks bann fyrir óprúðmannlega framkomu í viðureign Fjölnis og Hrunamanna.
[email protected]
Heimild: www.kki.is



