09:31
{mosimage}
(Haukur Helgi Pálsson fær að spreyta sig gegn landsliðinu)
Úrvalslið Iceland Express sem munu mæta landsliðum karla og kvenna í Stjörnuleikjum KKÍ 2008 hafa verið valin. Benedikt Guðmundsson þjálfari KR mun stýra karlaliðinu og Yngvi Gunnlaugsson þjálfari Hauka kvennaliðinu. Þeir kappar fengu fína aðstoð við valið á liðunum en Matthías Imsland forstjóri Iceland Express aðstoðaði þá við valið. www.kki.is greinir frá.
Í liðunum er spennandi og athyglisverð blanda af erlendum leikmönnum og ungum og efnilegum leikmönnum sem hafa verið að leika vel í Iceland Express deildunum og svo eru þarna nokkrir sem hafa verið að vekja mikla athygli með yngri landsliðum Íslands.
Úrvalslið Iceland Express karla:
Jason Dourisseau – KR
Nemanja Sovic – Breiðablik
Thomas Viglianco – FSU
Justin Shouse – Stjarnan
Caleb Holmes – Hrunamenn
Jason Pryor – Hamar
Darri Hilmarsson – KR
Rúnar Ingi Erlingsson – Breiðablik
Vésteinn Sveinsson – FSU
Hjörtur Einarsson – Njarðvík
Árni Ragnarsson – FSU
Haukur Pálsson – Fjölnir
Úrvalslið Iceland Express kvenna:
Ashley Bowman – Fjölnir
Julia Demirer – Hamar
LaKiste Barkus – Hamar
Guðbjörg Sverrisdóttir – Haukar
Slavica Dimovska – Haukar
Telma Fjalarsdóttir – Haukar
Hrönn Þorgrímsdóttir – Keflavík
Helga Einarsdóttir – KR
Sara Sædal Andrésdóttir – Snæfell
Íris Sverrisdóttir – UMFG
Ólöf Helga Pálsdóttir – UMFG
Jóhanna Sveinsdóttir – Hamar
Borgarskot til London og Kaupmannahafnar:
Eins og vanalega þá mun Iceland Express koma myndarlega að leiknum en 8 heppnir áhorfendur fá tækifæri á Borgarskotinu sem hefur slegið í gegn undanfarnar úrslitakeppnir. Borgarskotin verða upp á ferðir til London og Kaupmannahafnar. Á milli 1. og 2. leikhluta og 3. og 4. leikhluta í hvorum leik verða tveir dregnir út sem fá að spreyta sig.
Mynd: Jón Björn Ólafsson
www.kki.is



