spot_img
HomeFréttirKKÍ gefur félögunum bolta til dreifa í skóla

KKÍ gefur félögunum bolta til dreifa í skóla

08:55
{mosimage}

Stjórn KKÍ samþykkti á fundi sínum á dögunum að gefa aðildarfélögunum sínum minnibolta til að kynna körfuboltann í skólum bæjanna. Í þessari lotu eru það 500 boltar sem dreifast á aðildarfélögin. www.kki.is greinir frá.

Mörg félög hafa verið að fara í skólana til að kynna starfið innan deildanna og því er það kjörið tækifæri að gefa bekkjardeildum í skólunum bolta í leiðinni sem hvatningu.

Félögin hafa tekið þessu fagnandi og eru mörg þeirra þegar farin af stað en önnur fara eftir áramótin í sínar kynningar.

www.kki.is

Fréttir
- Auglýsing -