14:35:51
Kevin McHale og lærisveinar hans í Minnesota Timberwolves eru loks komnir á beinu brautina í NBA deildinni og unnu í nótt sinn fimmta sigur í röð. Annað lið sem hefur átt á brattann að sækja í vetur, botnlið Oklahoma Thunder vann Chicago í framlengdum leik í nótt og hefur nú unnið þrjá af síðustu sex leikjum sínum. Það hljómar ekki eins og mikið afrek en þetta unga lið hefur verið að lyfta sér upp eftir hryllilega byrjun þar sem þeir unnu aðeins þrjá leiki gegn 29 töpum fyrir það. Kevin Durant er óðum að festa sig í sessi sem framtíðarstjarna þrátt fyrir að vera nýorðinn tvítugur, og Jeff Green og Russel Westbrook eiga líka eftir að verða þekkt nöfn í þessari deild áður en langt um líður.
Á hinum endanum er Golden State Warriors í frjálsu falli og töpuðu fyrir Portland, sem er komið með Brandon Roy til baka úr meiðslum, og Washington situr sem fastast á botni Austurdeildarninnar eftir tap gegn Charlotte.
Úrslit hér að neðan…
Charlotte 92
Washington 89
Milwaukee 104
Minnesota 106
Oklahoma City 109
Chicago 98
New York 76
Houston 96
Detroit 82
Utah 99
Golden State 100
Portland 113
Tölfræði leikjanna
ÞJ






