HomeFréttirErlendur leikmaður á leið í Hólminn

Erlendur leikmaður á leið í Hólminn

15:48

{mosimage}

Stykkishólmspósturinn segir frá því á vef sínum að karlalið Snæfells ætli að bæta við sig erlendum leikmanni í stöðu leikstjórnanda. Hópur stuðningsmanna og stjórn meistaraflokks hittust á fundi á Narfeyrarstofu þar sem þetta var ákveðið.

Ákveðinn leikmaður er í sigtinu og er hann þekkt stærð hjá þjálfurum liðsins og er unnið í því að semja við hann og koma honum sem fyrst til landsins.

Nánar má lesa um fundinn á heimasíðu Stykkisholmspóstsins.

[email protected]

Fréttir
- Auglýsing -