HomeFréttirAndra margt til lista lagt

Andra margt til lista lagt

15:57
{mosimage}

(Andri Fannar Freysson)

Njarðvíkingurinn Andri Fannar Freysson er nú staddur í Noregi þar sem hann er til reynslu hjá norska úrvalsdeildarfélaginu Aalasund. Andri Fannar steig sín fyrstu skref með meistaraflokki Njarðvíkur í Iceland Express deild karla á þessari leiktíð en Andri er einnig öflugur knattspyrnumaður og hefur vakið athygli Norðmanna enda á kappinn ekki langt að sækja þessa fjölhæfni.

Sverrir Þór Sverrisson leikmaður Íslandsmeistara Keflavíkur er föðurbróðir Andra og hefur jafnan þótt frambærilegur knattspyrnu- og körfuboltamaður svo Andra er þetta í blóð borið. Andri hefur leikið 9 deildarleiki með UMFN á þessari leiktíð og hefur skorað að jafnaði 1,3 stig að meðaltali í leik.

Andri mun í Noregi hjá Aalasund taka þátt í móti fyrir unglingalið sem félagið stendur fyrir og hefst miðvikudaginn 14. janúar og lýkur sunnudaginn 18.

[email protected]

Fréttir
- Auglýsing -