HomeFréttirKaflaskil í bikarsögu ÍBV

Kaflaskil í bikarsögu ÍBV

18:00
{mosimage}

Sá merkilegi atburður átti sér stað hjá ÍBV á dögunum að í fyrsta sinn var yngri flokkur frá félaginu að tryggja sig inn í undanúrslitin í bikarkeppni yngri flokka. Þetta afrek vann 11. flokkur ÍBV með sigri á Grindavík í 8-liða úrslitum bikarkeppninnar. Lokatölur leiksins voru 59-61 fyrir ÍBV en leikurinn fór fram í Grindavík þar sem heimamenn áttu kost á því að jafna metin eða jafnvel stela sigrinum en allt kom fyrir ekki og ÍBV komnir í undanúrslit í fyrsta sinn í sögu yngriflokka félagsins.

11. flokkur félagsins er því komin lengst allra flokka í bikarkeppni og þá er meðtalinn meistaraflokkur ÍBV sem leikur í 2. deild karla.

Eyjamenn höfðu yfirhöndina í leiknum framan af en heimamenn í Grindavík færðust nær eftir því sem leið á leikinn en Eyjamenn héldu sjó og fögnuðu sigri. Alexander var stigahæstur með 28 stig hjá ÍBV og næstur honum í sigurliði gestanna var Kristján með 25 stig.

Sjá nánar um leikinn á heimasíðu ÍBV: http://ibv.is/karfa/index.php?p=101&id=26431

www.ibv.is

Fréttir
- Auglýsing -