06:00
{mosimage}
Enn eru örfá sæti laus á hið árlega Póstmót Breiðabliks sem haldið verður helgina 24. janúar – 25. janúar nk. Mótið hefur fest sig í sessi sem eitt af stærstu körfuboltamótum landsins fyrir yngstu iðkendurna en það er ætlað stelpum og strákum á aldrinum 6 – 11 ára.
Leikið verður í sex aldursflokkum. Í 1. – 2. bekk er leikið 4 á móti 4 en í 3. – 6. bekk 5 á 5. Leikgleðin og ánægjan er í fyrirrúmi á Póstmótinu og fá allir þátttakendurnir skemmtilegan glaðning að móti loknu.
Skráning er til 15. janúar á netfangið [email protected] Verð er 1500 kr. á hvern keppanda.
Allar nánari upplýsingar veitir Pétur Hrafn í síma 897 0714 og [email protected]



