HomeFréttirSnæfell úr botnsætinu eftir stórsigur á Fjölni (Umfjöllun)

Snæfell úr botnsætinu eftir stórsigur á Fjölni (Umfjöllun)

21:29

{mosimage}

Berglind Gunnarsdóttir var stigahæst Snæfellsstúlkna 

Fjörlegur leikur í botnbaráttu Express deildar kvenna var í kvöldþar sem Snæfell tók á móti Fjölni og eru bæði lið með 2 stig hvort. Snæfell eftir óvæntann sigur á Grindavík 85-71 og Fjölnir sigraði örugglega fyrri leik þessara liða í Grafarvogi 84-65. Það var því mikið í húfi fyrir bæði lið að krækja sér í sinn annan sigur í vetur en Fjölnisstúlkur voru án hinnar sterku Ashley Bowman.

Fjölnir byrjaði leikinn 3-0 og eftir að Snæfellsstúlkur jöfnuðu 5-5 var lítið aftur snúið í fyrsta hluta. Snæfellsstúlkur voru einbeittar og stoppuðu Fjölni hvað eftir annað og svifu áfram á bleiku skýi og með Kristen Green í fararbroddi og Berglindi Gunnars. Með hertri vörn og slatta af fráköstum tókst Snæfelli að leika Fjölni grátt og leiddu fyrsta hluta 16-6.

Snæfellsstúlkur skoruðu svo fyrstu 6 stig annars hluta og voru greinilega ekki hættar og áttu skot Fjölnis erfitt með að rata í körfuhringinn og unnu Snæfellsstúlkur annan leikhluta 16-8 og þær komnar með fína forystu í leikhléi 32-14. Kristen Green var komin með 12 stig og 5 fráköst fyrir Snæfell. Berglind Gunnars var komin með 7 stig. Sara Sædal var komin með 7 fráköst og Sara  Magnúsdóttir 5 fráköst. Þær voru að taka mikið af  fráköstum og gríðasterkar varnarlega. Hjá Fjölni voru Birna Eiríksdótti með 4 stig og Eva Emilsdóttir með 3 stig.

Snæfellstúlkur komust yfir 20 stiga forystu eftir körfur frá Unni og Berglindi ekki gefin tomma eftir. Staðan var 46-24 þegar Fjölnistúlkum var hreinlega meinaður aðgangur að leiknum og skoruðu systurnar Gunnhildur og Berglind þá 9-0 kafla fyrir Snæfell sem gerði 23-10 í leikhlutanum og 31 stiga forystu, 55-24, fyrir Snæfell fyrir lokahlutann.

Gunnhildur kom sterk inn fyrir Snæfell seinni hlutann og tók upp þráðinn frá þriðja hluta og byrjaði þann fjórða strax á 4 stigum. Sörurnar í Snæfell þær Sædal og Magnúsdóttir voru yfirburða manneskjur í fráköstum og voru búnar að taka saman 18 fráköst í upphafi lokahlutans. Bergdís Ragnarsdóttir var þó sterk varnarlega hjá Fjölni og var að halda frákastatölum liðsins uppi ásamt því að koma næst á eftir Birnu Eiríks í skori. En betur mátti ef duga skyldi og voru þær að halda uppi daufum leik Fjölnis ásamt Evu Mariu Emilsdóttur. Skotin voru ekki að detta og sóknarleikurinn með litlu flæði og spurning hvort þær sakni Ashley Bowman. Snæfell hélt uppteknum leik út leikhlutann sem þær leyfðu Fjölni að komat aðeins inní en unnu hann þó 25-19 og unnu leikinn með 37 stigum eða 80-43 og eru komnar úr botnsætinu.

Hjá Snæfelli voru Gunnarsdætur að spila vel. Berglind var með 18 stig og Gunnhildur 14 stig. Kristen Green átti góðann leik og setti 16 stig, 6 fráköst og 4 stoðs. Sara M var með 10 fráköst, Sara S með 8 frák og Unnur 7 frák. Snæfell tók fráköstin 51/33 í leiknum. Hjá Fjölni var Birna Eiríks með 16 stig, 4 frák og 4 stoðs. Bergdís Ragnars með 10 stig og 9 frák. Eva Emils var með 5 stig og 7 frák. Sóknarleikur Fjölnis var einfaldlega daufur í kvöld og sést það best á nýtingunni 14/54 eða 25,9% í 2 stiga skotum.

Tölfræði leiksins

Símon B. Hjaltalín.

Mynd: Snorri Örn Arnaldsson

Fréttir
- Auglýsing -