13:01
{mosimage}
(Ólafur J. Sigurðsson leikmaður Stjörnunnar fylgist með af bekknum í kvöld en hann glímir við bakmeiðsli)
Þrettánda umferðin í Iceland Express deild karla hefst í kvöld með tveimur leikjum en umferðinni lýkur svo annað kvöld með fjórum leikjum. Allir leikir umferðarinnar hefjast kl. 19:15. Stjarnan tekur á móti ÍR í Ásgarði og á Selfossi mætast FSu og Tindastóll.
Stjörnumenn hafa verið í fínu formi síðan Teitur Örlygsson var bendlaður við liðið. Teitur fylgdist með á bekknum á meðan Jón Kr. Gíslason og Eyjólfur Örn Jónsson stjórnuðu Stjörnunni til sigurs gegn FSu og svo var Teitur við stjórnartaumana þegar Stjarnan vann nokkuð óvæntan sigur á Grindavík í Ásgarði. ÍR er að koma úr erfiðri törn eftir þrjá leiki við toppliðin tvö, KR og Grindavík. ÍR leikur eins og áður hefur komið fram án Þorsteins Húnfjörð sem fluttur er til London og þá er óvíst hvort Sveinbjörn Claessen verði með ÍR í kvöld sökum meiðsla á ökkla. Þá mun Fannar Helgason mæta sínum gömlu félögum í ÍR en þar urðu þeir Fannar og Ólafur J. Sigurðsson m.a. Bikarmeistarar á þarsíðustu leiktíð. Ólafur verður ekki með Stjörnunni í kvöld sökum bakmeiðsla sem og Hilmar Geirsson.
Eins og sakir standa eru FSu í fallsætinu með Skallagrím en FSu hefur engu að síður jafn mörg stig og Þór og Stjarnan í næstu tveimur sætum fyrir ofan sig eða 8 stig. FSu vann mikilvægan útisigur í Njarðvík í síðustu umferð þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en á lokasekúndunum og því unnu nýliðarnir báðar deildarviðureignir sínar gegn Njarðvík. Tindastóll hefur tapað síðustu fjórum deildarleikjum sínum en hafa verið að fá til baka nokkra af félagsmönnum sínum á borð við Axel Kárason og þá styttist óðfluga í að Darrell Flake verði klár í slaginni að nýju eftir uppskurð og spurning hvort hann verði með Stólunum í kvöld?
Fleiri leikir eru á dagskrá í kvöld í neðri deildum og yngri flokkum en yfirlit yfir þá má sjá á leikvarpi KKÍ: http://kki.is/leikvarp.asp






