HomeFréttirFriðrik: Ætlum að vera fyrstir til að leggja KR!

Friðrik: Ætlum að vera fyrstir til að leggja KR!

11:58
{mosimage}

(Friðrik Ragnarsson)

Friðrik Pétur Ragnarsson þjálfari Grindavíkur segir sína menn spennta fyrir undanúrslitaleiknum í Subwaybikarnum gegn KR á morgun. Friðrik er með það á kristaltæru að uppselt verði á leikinn í DHL-Höllinni en kvaðst þó hafa viljað mæta KR í Laugardalshöll í úrslitaleiknum. Eflaust eru margir honum sammála en þetta er aðdráttaraflið í bikarnum, von á Öskubuskuævintýri í hverjum drætti.

Eru allir klárir í slaginn í Grindavík?
Já við erum klárir og bara bíðum spenntir eftir þessu. Við höfum undirbúið okkur vel og ætlum að vera fyrstir til að leggja KR. Þetta er verðugt verkefni og KR er flott lið sem hefur unnið alla sína leiki og án efa búið að vera besta liðið og pressan eykst á þá með hverjum leik að tapa ekki. Að sama skapi komum við afslappaðir til leiks og umfjöllunin hefur einhvern veginn verið þannig að þeir fari taplausir í gegnum allt en við ætlum okkur að afsanna þær spár.

Er það hollráð fyrir áhangendur að mæta vel tímanlega á morgun?
Ég held að það sé á kristaltæru að það verði uppselt á þennan leik en KR er liðið sem ég vildi fá í úrslitum og ef við hefðum mæst í Höllinni þá hefði aðsóknarmet verið slegið í íslenskum körfuknattleik. Fólk verður samt að mæta tímanlega á morgun og fá sér KR borgara.

Nú er nokkuð annað Grindavíkurlið sem mætir KR en þegar liðin hittust síðast í deildarkeppninni!
Já, Nick Bradford og Arnar Freyr eru komnir inn og þá var Helgi Jónas með flensu gegn KR en spilaði samt þannig að við vorum hálf leikstjórnendalausir í þeim leik. Við þurfum samt að spila gríðarlega vel til að vinna KR í DHL-Höllinni.

Hvað er það sem skipta mun sköpum í leiknum á morgun?
Hvernig okkur mun ganga að eiga við Jón Arnór, Jakob og kanann þeirra sem eru hjartað og sálin í KR-liðinu. Jón og Jakob hafa leikið frábærlega í vetur og við þurfum að hægja á þeim til að hafa sigur því þegar KR er í vandræðum taka þessir menn rispur sem klára leikina.

KR hafði góðar gætur á Páli Axeli í síðustu viðureign. Hefur Páll Axel eitthvað að sanna núna?
KR gerði vel gegn honum síðast að hemja Pál og Jason gerði vel gegn honum í vörninni en Páli Axeli er sama hvort hann skori 10 eða 50 stig svo fremi við vinnum. Páll Axel verður samt tilbúinn í þennan leik og við verðum að vera tilbúnir varnarlega til að ná sigri.

Hvernig er stemmningin í Grindavík fyrir morgundeginum?
Eins og einhver sagði þegar líkurnar voru 1 á móti 3 að fá KR þá voru þetta samt alltaf 97% líkur! Núna höfum við beðið eftir þessum leik í 10 daga og erum eins klárir og við getum orðið. Ef við erum nógu góðir þá vinnum við, annars töpum við.

[email protected]

Fréttir
- Auglýsing -