12:29
{mosimage}
(Valsmenn að ræða málin, mynd úr safni)
Valur tók á móti Laugdælum í 1. Deild karla að Hlíðarenda í gærkvöldi. Valsmenn eru í bullandi toppbaráttu en Laugdælir hafa aðeins unnið einn leik í vetur og sitja þess vegna á botni deildarinnar. Leikurinn í gær var ekki mikið fyrir augað en hvorugt lið gat státað af fallegum körfubolta. Valsmenn voru þó með nokkuð örugga forustu svo gott sem allan leikinn og unnu á endanum góðan 25 stiga sigur, 86-61. Valsmenn eru því búnir að jafna Hauka í öðru sæti deildarinnar með 16 stig en Hamar situr sem fyrr á toppnum með 22 stig.
Leikurinn fór frekar einkennilega af stað en bæði lið virtust hálf sofandi í öllum sínum sóknaraðgerðum. Þegar sex mínútur voru liðnar af leiknum höfðu valsmenn 6 stiga forskot, 8-2. Laugdælir voru að klikka trekk í trekk en Valsmönnum gekk illa að notfæra sér það. Það var ekki fyrr en undir lok leikhlutans að boltinn fór að detta ofaní og á seinustu tveimur mínutunum skoruðu liðin samanlagt 12 stig, eða meira en þau höfðu skorað á fyrstu 6 mínútum leiksins. Staðan var þess vegna 16-10 þegar flautað var til loka fyrsta leikhluta.
Hraðinn í leiknum jókst töluvert í öðrum leikhluta en Valsmenn að pressa hátt og keyrðu svo upp hraðan þegar þeir fengu boltan. Þetta virtist henta þeim ágætlega til að byrja með og þeir náðu rúmlega 10 stiga forskoti á tímabili. Laugdælir voru hins vegar ekki á því að gefast upp. Þeir spiluðu svæðisvörn sem virtist slá heimamenn eitthvað útaf laginu og þegar tvær mínútur voru eftir af fyrri hálfleik var munurinn aðeins 2 stig, 33-31. Þá tóku heimamenn hins vegar öll völd og með frábærri innkomu Kjartans Orra í Val, náðu þeir 10 stiga forskoti áður en flautað var til hálfleiks, 43-33.
Valsmenn sigu svo hægt og rólega frammúr gestunum í þriðja leikhluta og virtust ætla að sigla lignan sjó það sem eftir væri leiks. Þegar fjórar mínútur voru liðnar af leikhlutanum var munurinn kominn uppí 14 stig, 51-37. Gestirnir svöruðu þó alltaf fyrir sig með ágætis rispum en það virtist vanta ákveðinn stöðuleika í lið Laugdælinga. Munrinn á liðunum varð þó aldrei minni en 10 stig í þriðja leikhluta og þegar flautað var til loka hans var munurinn kominn upp í 16 stig, 65-49.
Fjórði leikhluti virtist þess vegna bara vera formsatriði fyrir heimamenn sem stungu ekki af fyrr en á lokamínútunum. Munurinn var ennþá 14 stig þegar leikhlutinn var hálfnaður en þá virtust gestirnir gefast upp og Valsmenn skoruðu 17 stig gegn 7 stigum gestana á seinustu 5 mínútum leiksins. 25 stiga sigur Valsmanna þess vegna staðreynd, 86-61
Stigahæstur í lið Vals var Kjartan Orri Sigurðsson með 18 stig en næstir voru Alexander Dungal og Rob Hodgson með 14 stig hvor. Hjá gestunum var Pétur Már Sigurðsson stigahæstur með 17 stig en næstir voru Viðar Örn Hafsteinsson með 10 stig og Snorri Þorvaldsson með 9 stig.
Umfjöllun og mynd : Gísli Ólafsson






