
Heath Sitton, bandaríski leikmaðurinn sem var hjá Njarðvík á haustdögum, en þurfti frá að víkja vegna efnahagshrunssins, er mættur aftur til félagsins. Stjórn körfuknattleiksdeildarinnar hefur verið í sambandi vð Heath af og til síðan hann fór til síns heima í haust. Sitton spilaði undirbúnings tímabilið með Njarðvíkingum og virtist falla í liðið sem flís við rass.
Án nokkurs vafa er þetta gríðarlegur styrkur fyrir þá grænklæddu þar sem þeim hefur sárvantað reyndan leikstjórnanda, þó svo að Valur Orri og Ágúst Dearborn hafa stigið inn og staðið sig með ágætum.



