HomeFréttirBarátta í b-riðli 9. flokks stúlkna (árgerð 1994)

Barátta í b-riðli 9. flokks stúlkna (árgerð 1994)

14:22
{mosimage}

Laugardaginn 31. janúar var þriðja umferð leikin í b-riðli í 9. flokki stúlkna. Í annarri umferðinni datt KR úr a-riðli og voru þær staðráðnar í því sigra b-riðilinn og koma sér upp aftur. Valsstelpur töldu að þær ættu góðan möguleika á því að skella KR því fyrr í mánuðinum hafði KR unnið þær með tveimur stigum í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins eftir að Valur hafði leitt nær allan leikinn. KFÍ-stelpur sem hafa tekið miklum framförum í vetur ætluðu að blanda sér í baráttuna en þær höfðu leikið vel á móti KR í æfingaleik í janúar.

KR vann alla leiki sína og leikur því í a-riðli í fjórðu umferðinni. Sömu helgi var einnig leikið í a-riðli. Efnilegt lið Breiðabliks lenti í neðsta sæti og missir því af úrslitunum. Í a-riðlinum vakti athygli góður leikur Hauka en þær náðu þriðja sæti í mótinu.

Hér á eftir fer smá umfjöllun um leikina í DHL-höllinni á laugardaginn.

KR-Valur

Valstelpurnar byrjuðu á því að stilla upp mjög hávöxnu liði (meðalhæð um 180 cm.) og leika 2-3 svæðisvörn. KR-stelpur höfðu undirbúið sig vel gegn þessari vörn og brutu hana niður með vel útfærðum sóknarleik og á sama tíma léku þær góða vörn. Staðan eftir fyrstu lotuna var 17-2 fyrir KR. Valur breytti síðan yfir í maður á mann vörn en KR hélt áfram að leika vel og staðan í hálfleik var 34-6. Valsstelpur mætti ákveðnari til leiks í seinni hálfleik og fóru að sýna sitt rétta andlit og eftir þrjár lotur var staðan 45-18. Leikur Vals var nokkuð góður í fjórðu lotunni og náðu þær að sigra þá lotu. Leikurinn endaði með sigri KR, 49-30. Ingunn átti góðan leik fyrir KR og var með 16 stig, Ragnhildur lék vörnina mjög vel og var með 11 stig, Stefanía lék vel og var með 9 stig. Valsstelpur náðu sér ekki nógu vel á strik í þessum leik, Sara skoraði 12 stig.

KFÍ-UMFNb (1995)

Í liði KFÍ eru margar efnilegar stelpur. Þær hafa tekið miklum framförum á þessu keppnistímabili undir handleiðslu þjálfara síns. Þessar stelpur njóta mikils stuðnings foreldra sinna og þær hafa verið duglegar að mæta í æfingabúðir utan heimabyggðar. Yngri flokka stúlknastarf UMFN hefur verið mjög öflugt síðustu ár og sést það m.a. á því að nokkrir árgangar hjá UMFN eru að leika tvöfalt, þ.e. upp fyrir sig.

KFÍ byrjaði leikinn vel og Aldís lék á alls oddi í sóknarleiknum. Eftir fyrstu lotuna var KFÍ yfir 18-6. Yfirburðir KFÍ héldu áfram í annarri (44-15) og þriðju lotunni (58-22). Í fjórðu lotunni náði UMFN að aðlaga leik sinn að eldri og stærri andstæðingunum og með vel útfærðum leik tókst þeim að sigra lotuna (14-16). Leikurinn endaði með sigri KFÍ 72-38. Aldís var með 20 stig fyrir KFÍ, Vera með 17 stig og Sunna með 12. Nöfnurnar í UMFN sem heita Guðlaug Björt skoruðu 16 stig saman.

KFÍ-Valur

Þrátt fyrir að hafa leikið leikinn næst á undan þá byrjaði KFÍ þennan leik af miklum krafti og komst í 8-2 og 13-7. Thelma og Sara áttu síðan góðan sprett fyrir Val og komu þeim rauðu yfir 19-15 er fyrsta lotan rann út. Önnur lotan var jöfn til að byrja með en góður kafli hjá Val um miðbik lotunnar kom þeim 11 stigum yfir. Valur var síðan yfir í hálfleik 41-32. Vals-stelpurnar léku vel í þriðju lotunni og í lok hennar var staðan 58-40. Leikurinn jafnaðist í síðustu lotunni og endaði með góðum sigri Vals, 67-41. Aldís var með góðan leik fyrir KFÍ og 21 stig, Vera var með 12 stig. Sara lék mjög vel fyrir Val í vörn og sókn og var með 26 stig, Björg stýrði sóknarleiknum vel og var með 8 stig.

KR-UMFNb

Það var aðdáunarvert að fylgjast með ungu Njarðvíkurstelpunum leika á móti eldra og mjög hávaxnara KR-liði. Staðan eftir eina lotu var 19-11 fyrir KR og í hálfleik var KR yfir 31-20. Þessi munur hélst langt inn í þriðju lotuna, en þá gaf UMFN aðeins eftir og KR var yfir í lok hennar 48-32. Njarðvíkurstelpurnar gáfu eftir í síðustu lotunni og KR fékk mikið af auðveldum körfum og sigraði 65-34. UMFN barðist vel í þessum leik, lokaði vel úti, lék lengstum vel í vörninni og sýndi oft góða takta í sókninni. Elísabet var með 11 stig fyrir UMFN og Aníta var með 8.  Ragnhildur lék mjög góðan leik fyrir KR og var með 22 stig og Stefanía með 15 stig.

UMFNb-Valur

Njarðvíkurstelpurnar mættu mjög grimmar á móti risunum í Val, þótt þær léku nú annan leikinn sinn í röð. Valur var yfir eftir fyrstu lotuna 14-9 og í hálfleik 33-23. Þær grænu léku vel í þriðju lotunni og í lok hennar var staðan 42-33 fyrir Val. Valur nýtti hæðina sína vel í fjórðu lotunni og turnarnir Sara og Elsa skoruðu margar auðveldar og fallegar körfur og lokatölurnar urðu 54-39 fyrir Val. Sara lék vel fyrir Val og var með 19 stig. Elsa Valsari sem er fædd árið 1996 var með stórleik og skoraði 13 stig.  Elísabet var með 8 stig fyrir UMFNb.

KR-KFÍ

KR-stelpurnar léku grimma vörn í fyrstu lotunni þar sem Ragnhildur var fremst í flokki, auk þess var sóknarleikur liðsins til fyrirmyndar. KR var yfir eftir eina lotu 24-7. KR lék mjög vel lengstan hluta annarrar lotu og komst 20 stig yfir. Þá fór KFÍ að sýna rétta getu sína og þær náðu að minnka muninn. KR var yfir í hálfleik 43-27.  KR lék vel í þriðju lotunni og jók muninn upp í 27 stig, 63-36. KFÍ bætti leik sinn í fjórðu lotunni og leikurinn endaði með góðum sigri KR, 73-51. Stefanía var með 20 stig fyrir KR, Ingunn og Ragnhildur voru með 16. Aldís var með frábæran leik í sókninni hjá KFÍ og var með 24 stig og Vera var með 13 stig.

Umgjörð mótsins var ágæt. Flestir leikir voru dæmdir af leikmönnum meistarflokks kvenna og nákomnum. Stelpurnar í 7. flokki KR stóðu sig vel á ritarborðinu. Þótt þetta hafi verið b-riðill þá voru gæði leikja nokkuð mikil og þarna voru margar efnilegar stelpur að leika.

Stefán Arnarson
Mynd: www.kr.is/karfa

 

Fréttir
- Auglýsing -