21:16
{mosimage}
Þrír leikir fóru fram í Iceland Express deild kvenna. Í A-riðli voru það KR-ingar sem lögðu Keflavík í DHL-Höllinni 78-74 eftir æsispennandi leik.
Hamarskonum tókst ekki að vinna Hauka þar sem Hafnfirðingar fóru með 63-72 sigur af hólmi. Þá gerðu Valskonur fína ferð vestur í Stykkishólm og lögðu nýliða Snæfells 67-76.
Einn leikur er í 1. deild karla þar sem Laugdælir taka á móti Haukum en sá leikur stendur nú yfir en hann hófst kl. 20:00.






