22:00
{mosimage}
(Hildur leiddi baráttuglatt lið KR til sigurs í kvöld)
Mikill baráttuleikur fór fram í DHL-Höllinni í kvöld þegar KR lagði Keflavík 78-74 í A-riðli Iceland Express deildar kvenna. Úrslit leiksins réðust ekki fyrr en á lokasekúndunum þegar Keflvíkingar gerðust sekir um stórkostleg varnarmistök og leyfðu Hildi Sigurðardóttur að valsa í gegnum teig sinn og tryggja KR sigurinn.
Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir opnaði leikinn fyrir Keflavík er hún komst inn í sendingu hjá KR, brunaði upp völlinn og lagði boltann af öryggi í körfuna. Hildur Sigurðardóttir var ekki lengi að jafna metin fyrir heimaliðið en óhætt er að segja að bæði lið hafi verið æði mistæk í upphafi leiks og köstuð boltanum frá sér í hvívetna.
Heimakonur í KR voru þó sérlega mistækar í sóknum sínum en hlupu af sér hornin snemma þegar Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir jafnaði leikinn fyrir KR í 8-8. Keflvíkingar beittu gestgjafa sína pressu allt frá fyrstu mínútu og skiluðu mun grimmari varnarvinnu en KR-ingar. Báðar þær Sigrún Ámundadóttir og Hildur Sigurðardóttir fengu tvær villur í upphafsleikhlutanum sem kom sér einkar illa fyrir KR. Marín Rós Karlsdóttir kom Keflavík síðan í 12-16 með þriggja stiga körfu og Bryndís Guðmundsdóttir var að leika vel en hún kom af tréverkinu hjá Keflavík og er óðum að ná sínu fyrra formi eftir langvarandi meiðsli. KR lét Keflavík þó ekki stinga sig af og leiddu gestirnir 17-19 eftir fyrsta leikhluta.
Eins og kunnugt er varð Margrét Kara Sturludóttir Íslandsmeistari með Keflavík á síðustu leiktíð en leikur nú með KR. Það sem kannski færri vita er að annar Keflvíkingur leynist í herbúðum Vesturbæinga en sú heitir Gréta Guðbrandsdóttir og kom með mikla baráttu inn í lið KR í öðrum leikhluta.
Helga Einarsdóttir jafnaði leikinn í 19-19 af vítalínunni og hægt og bítandi fóru heimakonur að taka völdin. Gréta sýndi góð sóknartilþrif í liði KR og gerði fjögur stig fyrir Vesturbæinga á skömmum tíma. Ekki leið á löngu uns KR komst yfir 28-25 og héldu þær forystunni allt fram að hálfleik en leikar stóðu 41-34 fyrir KR í leikhléi.
Keflvíkngar urðu fyrir smávægilegu áfalli þegar Pálína Gunnlaugsdóttir snéri sig á ökkla undir lok hálfleiksins og lék ekki meir í öðrum leikhluta. Pálína haltraði af velli en mætti aftur til síðari hálfleiks eins og hennar var von og vísa. Birna Valgarðsdóttir var með 9 stig hjá Keflavík í hálfleik en hjá KR var Hildur Sigurðardóttir með 10 stig. Tveir leikmenn KR voru komnir í villuvandræði í fyrri hálfleik, þær Sigrún Ámundadóttir og Gréta Guðbrandsdóttir voru báðar með 3 villur sem og Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir í liði Keflavíkur.
{mosimage}
(Pálína sækir að körfu KR)
Keflvíkingar voru mun ákveðnari í upphafi síðari hálfleiks og með þriggja stiga körfum frá Birnu Valgarðsdóttur og Pálínu Gunnlaugsdóttur náðu gestirnir að minnka muninn í eitt stig, 46-45. Birna jafnaði síðan metin í 52-52 með annarri þriggja stiga körfu og Keflvíkingar leiddu að loknum þriðja leikhluta 54-56 þar sem Birna Valgarðsdóttir var alltí öllu.
Vörn Keflavíkur var til fyrirmyndar í upphafi fjórða leikhluta en lítið var skorað á báða bóga. Þegar rétt rúmar fimm mínútur voru til leiksloka fékk Sigrún Ámundadóttir dæmda á sig sína fimmtu villu og varð frá að víkja. KR-ingar létu fjarveru Sigrúnar ekki á sig fá og héldu ótrauðir áfram. Hildur Sigurðardóttir kom KR í 68-67 með þriggja stiga körfu þegar 3 mínútur voru eftir en Pálína Gunnlaugsdóttir kom Keflavík í 73-74 með tveimur vítaskotum þegar 40 sekúndur voru til leiksloka.
Endaspretturinn var svo æsispennandi. Þegar 2,47 sek voru til leiksloka gerðu Keflvíkingar afdrifarík mistök í vörninni og það nýtti Hildur Sigurðardóttir sér vel og valsaði í gegnum Keflavíkurteiginn og lagði boltann í netið og breytti stöðunni í 76-74 KR í vil. Keflavík tók leikhlé og áttu innkast á miðjunni en grýttu boltanum útaf við endalínu og þar með var sigurinn í höfn hjá KR sem voru komnar með skotrétt og settu niður tvö víti þegar 0,78 sekúndur voru til leiksloka. Sterkur sigur hjá KR konum sem nú eru með 18 stig í 3.-4. sæti eins og Hamar sem lá gegn Haukum í Hveragerði í kvöld.
Birna Valgarðsdóttir var yfirburðaleikmaður í Keflavíkurliðinu í kvöld með 29 stig og 9 fráköst. Næst henni var Pálína Gunnlaugsdóttir með 17 stig en hún sýndi enn eina ferðina hvað í hana er spunnið eftir að hafa klárað leikinn þrátt fyrir að hafa misstigið sig illa undir lok fyrri hálfleiks.
Í liði KR var Hildur Sigurðardóttir með 21 stig og 8 fráköst en þar næst var Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir með 13 stig, 7 stoðsendingar og 5 fráköst. Margrét Kara Sturludóttir var ekki að finna taktinn gegn sínum gömlu félögum úr Keflavík en hún gerði aðeins 2 stig í leiknum.
Sé tekið mið af leiknum í kvöld má búast við mikilli baráttu þessara liða í Laugardalshöll þegar þau mætast í úrslitaleik Subwaybikarkeppninnar þann 15. febrúar næstkomandi.
{mosimage}
{mosimage}
{mosimage}






