HomeFréttirSagt eftir leik í DHL-Höllinni: Hildur og Birna

Sagt eftir leik í DHL-Höllinni: Hildur og Birna

08:58
{mosimage}

(Hildur í kröppum dansi)

Þær Hildur Sigurðardóttir og Birna Valgarðsdóttir voru fyrirferðamiklar í deildarslag KR og Keflavíkur í Iceland Express deild kvenna í gærkvöldi. Hildur gerði 21 stig í leiknum og leiddi KR til 78-74 sigurs gegn Keflavík en Birna dró vagninn hjá Íslandsmeisturunum með 29 stig. Karfan.is ræddi við Hildi og Birnu í leikslok.

Hildur Sigurðardóttir, KR:

,,Við erum búnar að vita það í allan vetur að við höfum átt mikið inni enda höfum við ekki verið að spila okkar leik og vorum ekki að hafa gaman af þessu fyrri part tímabilsins. En um leið og við förum að hafa gaman af þessu þá erum við bara með þrusu lið og við eigum alveg séns eins og öll önnur lið á að keppa um titilinn í lok tímabilsins,“ sagði Hildur.

Hvað gerðist undir lok leiksins þegar þú saumaðir þig í gegnum vörn Keflavíkur, þær hreinlega hleyptu þér í gegn eins og þær vildu að þú skoraðir!
,,Við settum ekki einu sinni upp í þessari sókn og þetta var klaufaleg sókn hjá okkur en við vorum heppnar hvað þær gleymdu sér í vörninni. Ég vissi það að við þurftum að skora og það tókst í þetta skipti.“

Þið lékuð án Sigrúnar Ámundadóttur síðustu fimm mínútur leiksins!

,,Við erum með breiðan hóp og þó svo einhver ein detti út þá kemur önnur inn á. Gréta Guðbrandsdóttir er t.d. að koma sterk inn í þetta hjá okkur, það er góð barátta í henni en vissulega var fimmta villan hjá Sigrúnu töluverður missir hjá okkur en við náðum að leysa það og flott fyrir liðið að mega við því að missa svona sterkan leikmann af velli,“ sagði Hildur en KR lék án Sigrúnar síðustu fimm mínútur leiksins.

Hvað viltu segja við þá sem skoða þennan leik og ætla sér eitthvað að spá fyrir um bikarúrslitin?
,,Þetta verður álíka í Höllinni, hart barist og ég býst við því að Keflavík ætli sér að hefna fyrir þetta en það er langt síðan við höfum unnið titil og erum orðnar hugnraðar í titla og það er það sem KR-ingar vilja fá!

Er Keflavíkurliðið reyndara en KR í stórleikjum og mun það hafa áhrif í bikarúrslitaleiknum þann 15. febrúar?
,,Ég veit það ekki, bikarleikir eru bikarleikir og það kemur bara í ljós hvort við séum með nægilega þroskað og öflugt lið til þess að takast á við þetta verkefni.“

Er erfitt að einbeita sér að deildarkeppninni þegar bikarúrslitaleikurinn er framundan?
,,Nei nei, ég finn bara fyrir meiri spennu og maður er bara betur einbeittur ef eitthvað er.“

{mosimage}
Birna Valgarðsdóttir, Keflavík:

Var þetta forsmekkurinn af því sem koma skal í Laugardalshöll?
,,Allavega spennustigið og það getur allt gerst í bikarleik en við vorum skelfilega lélegar og við skitum upp á bak í þessum leik,“ sagði Birna ósátt við ósigurinn.

Vörnin var sterk framan af en hvað geriðst?
,,Við fórum bara að hengja haus og láta það pirra okkur þegar KR fór að spila stíft og við vorum bara lélegar,“ sagði Birna sem var áberandi stigahæst í Keflavíkurliðinu. Telur hún að það hafi þurft meira framlag frá öðrum liðsmönnum?

,,Nei nei, þær voru bara duglegar að mata mig í þessum leik en við þurfum að hafa hausinn í lagi í svona leikjum. Það er ekki flóknara,“ sagði Birna en hvað er það sem Keflavíkurliðið þarf þá helst að laga fyrir bikarúrslitaleikinn gegn KR?

,,Hugarfarið, það er ekkert annað í stöðunni, við vorum að spila ágæta vörn á köflum en það er hugarfarsbreyting sem þarf að eiga sér stað,“ sagði Birna en eru Keflvíkingar með þessum ósigri búnir að gefa Haukum efsta sæti riðilsins?

,,Nei, við ætlum að láta þær hafa fyrir þessu efsta sæti og við spyrjum bara að leikslokum,“ sagði Birna sem farið hefur á kostum með Keflavík þessa leiktíðina og gerir 23,5 stig að meðaltali í leik. Aðspurð hvort hún ætti eitthvað meira bensín á tanknum en aðrir kvaðst Birna versla bara hjá ÓB og ljóst að ósigurinn í gær risti ekki djúpt heldur var hún strax farin að horfa fram á veginn.

[email protected]

Fréttir
- Auglýsing -