10:00
{mosimage}
(Snyrtilega útfært varnarvalhopp hjá Kristrúnu Sigurjónsdóttur leikmanni Hauka)
Topplið Hauka gerði enn eina ferðina til fjár í Hveragerði í gærkvöldi þegar þær lögðu Hamar 63-72. Það verður því enn einhver bið á því að Hamar vinni sinn fyrsta sigur á Haukum í sögu Körfuknattleiksdeildar Hamars.
Kristrún Sigurjónsdóttir fór mikinn í liði Hauka með 28 stig, 7 fráköst og 4 stolna bolta en LaKiste Barkus dró vagninn í liði Hamars með 31 stig, 8 fráköst og 7 stolna bolta.
Haukar tróna á toppi A-riðils deildarinnar með 30 stig en Hamar deilir 3.-4. sæti með KR en bæði lið hafa nú 18 stig.
Meðfylgjandi myndir tók Sævar Logi Ólafsson í Hveragerði í gær.
{mosimage}
{mosimage}
{mosimage}
{mosimage}
{mosimage}
{mosimage}
{mosimage}
{mosimage}
{mosimage}






