HomeFréttirLeBron í hóp með Jordan og Jabbar

LeBron í hóp með Jordan og Jabbar

09:21:05
NY Knicks hafa verið góðir heim að sækja í síðustu tveimur leikjum, en LeBron James fylgdi 61 stigs frammistöðu Kobe Bryants eftir með því að skella 52 stigum á þá og bætti við 11 fráköstum og 10 stoðsendingum í sigri í nótt. Þetta var í annað skiptið sem James fer yfir 50 stigin í Madison Square Garden en það hefur enginn annar gert fyrir utan Michael nokkurn Jordan sem glöggir lesendur ættu að muna eftir. Þá var þetta í fyrsta sinn sem nokkur leikmaður nær þrefaldri tvennu með 50 stigum frá því að Kareem Abdul-Jabbar gerði það árið 1975.

Nánar um leiki næturinnar hér að neðan…
James hóf leikinn með miklum látum og skoraði 20 stig strax í fyrsta leikhluta en Knicks héldu sér inni í leiknum fram til leiksloka. Víst er að margir eru farnir að horfa til sunnudagskvölds þegar Kobe og félagar, sem unnu Toronto í nótt, mæta til Cleveland. Ef einhver hefur verið í vafa um að þarna séu tveir bestu leikmenn deildarinnar ættu síðustu leikir að taka af öll tvímæli.

(ath. 2 dögum síðar var ein stoðsending tekin af JAmes þannig að þrennan var slegin út)

Meðal annarra úrslita í nótt má geta þess að Orlando vann sinn fyrsta leik eftir að hafa misst stjörnuleikmanninn Jameer Nelson í meiðsli. Þeir unnu sigur á Clippers sem hafa verið afar gjafmildir í vetur og eru að vísu í hræðilegu meiðslahallæri.

Annað lið sem er án leikstjórnanda er New Orleans Hornets sem lágu fyrir Chicago, en þeir síðarnefndu hafa aldeilis girt sig í brók að undanförnu eftir hræðilega byrjun á tímabilinu.

Þá unnu Memphis Grizzlies sinn annan sigur í röð eftir 12 leikja taphrinu. Nýliðinn OJ Mayo var sem fyrr allt í öllu hjá Grizzlies og gerði 32 stig.

Úrslit næturinnar:

New Jersey 115
Washington 88

LA Clippers 96
Orlando 125

LA Lakers 115
Toronto 107

Miami 90
Detroit 93


Cleveland 107
New York 102

Chicago 107
New Orleans 93

Denver 114
Oklahoma City 113

Atlanta 94
Minnesota 86

Houston 93
Memphis 104

Portland 99
Dallas 104

Phoenix 112
Golden State 124

ÞJ

Fréttir
- Auglýsing -