00:13:38
Cleveland Cavaliers og Mo Williams varð loks að ósk sinni í dag þegar Williams var tilnefndur í Stjörnulið Austurdeildarinnar fyrir næstu helgi, en hann komur inn í liðið í stað Chris Bosh, sem á ekki heimangengt sökum meiðsla. Mikil pressa hefur verið frá Cleveland-mönnum að fá Williams inn í liðið, en þessi knái leikstjórnandi hefur leikið afbragðsvel í vetur og er annar stigahæsti leikmaður liðsins á eftir LeBron James, sem var einmitt einn háværasti stuðningmaður Williams.
Áður hafði David Stern, æðsti yfirmaður NBA-deildarinnar, skipað Ray Allen frá Boston Celtics í stað Jameer Nelson sem meiddist, en nú átti hann fárra kosta völ, en Williams er heldur engin hrapalengding þar sem hann hefur skorað rúm 17 stig og gefið 4,2 stoðsendingar fyrir utan þá staðreynd að hann er ein besta 3ja stiga skytta deildarinnar.
ÞJ






