16:58
{mosimage}
(Pétur Guðmundsson)
Pétur Guðmundsson er hættur sem þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Grindavík en þetta staðfesti Óli Björn Björgvinsson formaður körfuknattleiksdeildarinnar við Vísi nú áðan. Pétur var búin að vera með liðið í eitt ár. www.visir.is greinir frá.
Grindavík endaði í 2. sæti í neðri deild á þessu tímabili og datt síðan út úr sex liða úrslitum í úrslitakeppninni eftir oddaleik á móti KR. Liðið vann 8 af 20 leikjum í deildarkeppninni en Grindavík lék án erlends leikmanns á tímabilinu líkt og KR.
Grindvíkingar eru ekki búnir að finna eftirmann Péturs en sá hinn sami verður áttundi þjálfari kvennaliðsins í Grindavík frá árinu 2002.
Mynd: [email protected]



