spot_img
HomeFréttirFinnarnir reyndust einu númeri of stórir

Finnarnir reyndust einu númeri of stórir

18:56

{mosimage}

Finnland vann öruggan sigur á Íslandi 92-37 í lokaleiknum hjá U-16 stúlkna. Eins og lokatölur gefa til kynna var sigur þeirra bláu aldrei í hættu. Stelpurnar sýndu þá á köflum afar fína takta og ljóst að munurinn á þessum liðum er ekki svona mikill.

Byrjunarlið Íslands: María Ben Jónsdóttir, Eva Rós Guðmundsdóttir, Thelma Ásgeirsdóttir, Berglind Gunnarsdóttir og Margrét Rósa Hálfdanardóttir.

Það var ljóst frá fyrstu mínútu í hvað stemmdi en það var þó Ísland sem skoraði fyrstu körfuna en  það gerði Eva Rós Guðmundsdóttir. Þá komu 12 stig í röð hjá Finnlandi og róður Íslands orðin frekar þungur strax í upphafi. Staðan að loknum fyrsta leikhluta var 25-9 Finnum í vil.

{mosimage}

Stelpurnar sýndu klærnar í öðrum leikhluta en þær byrjuðu að minnka muninn jafnt og þétt. Á þessum kafla voru þær grimmar í vörninni ásamt því að þær pössuðu boltann mun betur. Því að í hvert skipti sem boltinn tapaðist þá voru Finnarnir snöggir upp völlinn til að refsa. Stelpurnar náðu tveim góðum rispum í leikhlutanum og minnkuðu muninn í 11 og 13 stig. En nær komust þær ekki að sinni og Finnarnir juku muninn og staðan í hálfleik 48-25.

Byrjunin í seinni hálfleik hjá Íslandi var afleit en stelpurnar töpuðu hverjum boltanum á fætur öðrum gegn sterkri boltapressu hjá Finnlandi. Svo fór að fyrstu 13 stig leikhlutans voru finnsk en stlepurnar náðu þó aðeins að svara og staðan var 61-30 þegar um 3 mínútur voru eftir af þriðja. Finnarnir kláruðu leikhlutann sterkt en þær finnsku skoruðu tíu stig gegn tveimur frá Íslandi og því munurinn kominn í 39 stig 71-32.

Það var aldrei spurning hvað myndi gerast í fjórða leikhluta en þær finnsku héldu áfram að keyra á íslensku stelpurnar og munurinn jókst jafnt og þétt og að lokum var staðan orðin 92-37 fyrir Finnlandi.

{mosimage}

Ísland mætir Danmörku á morgun í leik um þriðja sætið en þegar þessi lið mættust í vikunni þá unnu Danir í ótrúlegum leik þar sem Íslandi átti að vinna. Hefst leikurinn kl. 08.30(06.30 að íslenskum tíma)

Stig:
María Ben Jónsdóttir 8 stig
Margrét Rósa Hálfdanardóttir 7 stig
Eva Rós Guðmundsdóttir 5 stig
Berglind Gunnarsdóttir 5 stig
Ína María Einarsdóttir 4 stig
Árnína Lena Rúnarsdóttir 3 stig
Hrafnhildur Sævarsdóttir 2 stig
Árný Sif Gestsdóttir 2 stig
Thelma Ásgeirsdóttir 1 stig
Sandra Grétarsdóttir, Sigrún Albertsdóttir og Dagbjört Samúelsdóttir spiluðu en náðu ekki að skora.

www.kki.is

myndir: [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -