HomeFréttirDurant yngsti stigakóngur frá upphafi - Allt klárt fyrir úrslitakeppnina

Durant yngsti stigakóngur frá upphafi – Allt klárt fyrir úrslitakeppnina

Kevin Durant, framherji Oklahoma City Thunder, varð í nótt yngsti stigakóngur NBA frá upphafi þegar hann lauk mögnuðu tímabili með 30.1 stig að meðaltali í leik, en LeBron James kom honum næstur með 29.7 stig að meðaltali.

  
Durant er 21 árs og á sínu þrijða ári í NBA. Hann sló með þessu met Max Zaslofskis sem var 22ja ára þegar hann vann stigatitilinn á tímabilinu 1947-48 fyrir Chicago Stags.
 
Deildarkeppni NBA lauk í nótt með fjölmörgum leikjum þar sem Chicago tryggði sér síðasta sætið í úrslitakeppni Austurdeildarinnar, en flest stóru liðin hvíldu sína bestu menn fyrir átökin sem eru framundan.
 
Ekki er hægt að segja að það hafi skilað góðum úrslitum í nótt, því t.a.m. töpuðu Cleveland, Boston og LA Lakers öll leikjum sínum. Cleveland fyrir Atlanta, Boston fyrir Milwaukee og Lakers fyrir grönnum sínum í Clippers.
 
 
Þannig er ljóst hvaða lið munu mætast í fyrstu umferð úrslitakeppninnar sem hefst nú um helgina.
 
Austurdeild:
Cleveland – Chicago
Orlando – Charlotte
Atlanta – Milwaukee
Boston – Miami
 
Vesturdeild:
LA Lakers – Oklahoma
Dallas – San Antonio
Phoenix – Portland
Denver – Utah
Fréttir
- Auglýsing -