Öðrum úrslitaleik Keflavíkur og Snæfells var að ljúka rétt í þessu í Stykkishólmi þar sem heimamenn fóru með 91-69 sigur af hólmi. Staðan í einvíginu er því jöfn, 1-1.
4. leikhluti
Snæfell hafði 91-69 sigur á Keflavík og því er staðan jöfn, 1-1 í einvíginu. Sigurður Þorvaldsson fór á kostum í liði Hólmara með 29 stig í leiknum og nýji leikmaðurinn Jeb Ivey gerði 13 stig og gaf 4 stoðsendingar í leiknum. Hjá Keflavík var Urule Igavboa atkvæðamestur með 15 stig en hann lét allt of seint til sín taka í leiknum. Leiknum verður gerð nánari skil innan skamms….

3. leikhluti
Snæfell leiðir 74-48 eftir þrjá leikhluta og Keflvíkingar hafa ekki sýnt það á sér að þeir ætli að saxa á forskot heimamanna. Lýst er eftir lykilmönnum í liði Keflavíkur sem hafa verið á hælunum í allan dag á meðan Hólmarar hafa látið rigna og eru t.d. komnir með 11 þrista í leiknum.
2. leikhluti
Snæfell leiðir 54-35 í hálfleik eftir magnaðan annan leikhluta þar sem Sigurður Þorvaldsson hefur verið að finna taktinn í liði heimamanna og er kominn með 21 stig. Gunnar Einarsson er stigahæstur í liði Keflavíkur í hálfleik með 9 stig. Snæfell tók 17-0 kafla í öðrum leikhluta og ekki er að sjá að Jeb Ivey sé nýkominn úr flugi en hann hefur verið í fínum takti með Snæfellsliðinu. Óhætt er að gefa sér að Keflavík svari döprum fyrri hálfleik í þeim síðari og þessi viðureign því hvergi nærri búin.
1. leikhluti
Snæfell leiðir 24-18 að loknum fyrsta leikhluta þar sem Sigurður Þorvaldsson er kominn með 10 stig í liði Snæfells en hjá Keflavík er Hörður Axel Vilhjálmsson kominn með 5 stig. Jeb Ivey kom inn á þegar 3 mínútur voru eftir af leikhlutanum og náði að smella niður sínum fyrstu stigum með stökkskoti í teignum.
Byrjunarliðin:
Snæfell: Pálmi Freyr Sigurgeirsson, Emil Þór Jóhannsson, Sigurður Á. Þorvaldsson, Martins Berkis og Hlynur Bæringsson.
Keflavík: Hörður Axel Vilhjálmsson, Draelon Burns, Gunnar Einarsson, Urule Igavboa og Sigurður Gunnar Þorsteinsson.
Dómarar leiksins: Björgvin Rúnarsson og Rögnvaldur Hreiðarsson.
Ljósmynd/ [email protected] – Jeb Ivey er mættur í Hólminn og leikur í treyju nr. 15.