Heppinn áhorfandi á fyrsta leik Lakers og Oklahoma í úrslitakeppni NBA deildarinnar er í dag 235.000 dollurum ríkari eftir að kappinn smellti niður miðjuskoti í Staples Center. Fyrrum landsliðskonan og leikmaður Keflavíkur, Björg Hafsteinsdóttir, var stödd á leiknum og sagði allt hafa orðið vitlaust í húsinu þegar skotið fór ofan í. Kappinn sem hitti er nú rétt rúmum 30 milljón krónum ríkari!
,,Þetta var ótrúlegt, ég held að þeir sem valdir eru til að taka þessi skot viti það með einhverjum fyrirvara og því var þessi gaur örugglega búinn að æfa sig eitthvað. Ég var nýbúinn að segja við sessunaut minn að hann myndi aldrei hitta úr þessu – gífurleg spenna fylgir þessu þar sem húsið var fullt af fólki. Þarna voru $235.000 í boði og potturinn svona stór því hann hafði ekki gengið út lengi. En snilldarskot sem fór beint í körfuna og það varð allt vitlaust í Staples Center. Þrátt fyrir að í húsinu hafi verið mikið af frægu fólki þá er nokkuð ljóst að þessi var sá launahæsti þetta kvöld. Ég hugsaði nú til Önnu Maríu vinkonu sem hitti úr 2 skotum frá miðju og vann "Nissan Micra" fyrir nokkrum árum en þá var það þannig að hún átti að fá 3 skot og hitta úr 2. Hún hitti hins vegar úr 2 fyrstu. En leikurinn var frábær skemmtun og mikil upplifun að fara á leik í úrslitakeppni NBA,“ skrifaði Björg okkur frá Kaliforníu.
Hér er svo hægt að sjá myndbandið frá skotinu fræga en framan af myndbandinu er Phil Jackson þjálfari Lakers í viðtali og svo er skipt yfir á miðjuskotið.
Ljósmynd/ Liðsfélagarnir Björg t.v. og Anna María t.h.



