HomeFréttirSigurður Þorvaldsson: Langþráður draumur

Sigurður Þorvaldsson: Langþráður draumur

 
„Þetta er langþráður draumur” sagði Sigurður Þorvaldsson leikmaður Snæfells eftir sigurleik Snæfells gegn Keflavík í kvöld. „Þetta er bara geggjað ég get ekki lýst þessari tilfinningu hún er geðveik” bætti hann við um þá tilfinningu að loksins lyfta þeim stóra á loft.
Ingi Þór Steinþórsson kom eins og stormsveipur í Hólminn og á sínu fyrsta ári með liðið gerði hann þá að tvöföldum meisturum. Sigurður sagði að Ingi hafi algjörlega verið vítamínsprauta fyrir liðið sem þrisvar sinnum áður hefur spilað til úrslita, alltaf gegn Keflavík og alltaf tapað.
 
„Ingi kemur og breikkar hjá okkur hópinn. Hann fær gaura eins og Emma (Emil Jóhannsson), Palla (Páll Fannar Helgason) og Pálma (Sigurgeirsson) og það sýndi sig bara í kvöld hversu breiður hópurinn er. Það eru sex menn sem skora yfir 10 stig og þetta er bara það sem hefur vantað hjá okkur að breikka og stækka hópinn.”
 
„Það verður partý á Hótel Stykkishólmi og þangað koma allir Hólmarar hvort sem þeir búa þar eða ekki. Öllum er velkomið að koma, þú mátt mæta” sagði Sigurður að lokum sigurreifur á leiðinni í fagnaðarlætin.
 
Viðtal: [email protected]  
Ljósmynd: [email protected] Sigurður með Sindra Stál bikarinn fræga.
Fréttir
- Auglýsing -