HomeFréttirUrule: Fórum að hjálpa of mikið í vörninni

Urule: Fórum að hjálpa of mikið í vörninni

 
,,Ég tel að Keflavík hafi sem lið ekki komið tilbúið til þess að spila, við vorum á heimavelli og tókum því einhvern veginn sem sjálfsögðum hlut að hér myndum við spila vel. Því miður lékum við ekki sem lið og því fór sem fór,“ sagði Urule Igbavboa eftir tapleik Keflavíkur gegn Snæfell í gær. Urule var sá eini í liði Keflavíkur ásamt Sverri Þór Sverrissyni sem lék af eðlilegri getu í gærkvöldi þegar Keflvíkingar fengu 69-105 skell í oddaleik liðanna.
Urule skoraði 23 stig í leiknum og tók 6 fráköst en hann hefur vaxið gríðarlega allt síðan hann gekk í raðir Keflvíkinga og í seríunni olli hann Hólmurum töluverðum vandræðum í teignum. Tímabilið var flott hjá Urule, hann gerði 14,8 stig og tók 7,5 fráköst að meðaltali í leik og var með tæplega 70% nýtingu að jafnaði í teigskotunum sínum!
 
Keflavík náði aldrei að ógna forystu Snæfells í leiknum í gær þó flestir byggjust við því að þeir myndu komast nærri og gera spennandi leik úr stöðunni. Við leituðum skýringa hjá Urule:
 
,,Aðalvandamálið var að við gátum bara ekki haldið okkur fyrir framan þann mann sem við vorum að dekka og þess vegna fórum við að hjálpa of mikið í vörninni og það er erfitt gegn liði eins og Snæfell þar sem hver einasti leikmaður getur skotið. Þeir fengu því galopin skot og þetta eru afleiðingarnar,“ sagði Urule en hvað með framhaldið, hefur hann hug á því að leika áfram á Íslandi?
 
,,Ég hef bara ekki hugmynd um það, ef svo færi á endanum þá myndi ég skoðað það með opnum augum að vera hér áfram.“
 
Viðtal: [email protected]  
Ljósmynd/ Sölvi Logason: Urule Alexander Imuzeze Igbavboa sækir að körfu Hólmara í gær.
Fréttir
- Auglýsing -