Unnur Lára Ásgeirsdóttir úr Snæfelli hefur ákveðið að ganga til liðs við Hauka fyrir næsta tímabil. Unnur Lára er tvítug og var einn af lykilleikmönnum í efnilegu liði Snæfells sl. tímabil. Hún er kröftugur framherji og mun án efa styrkja efnilegan hóp Haukakvenna næsta vetur. Unnur er önnur Snæfellskvenna sem gengur til liðs við Hauka en áður hafði Gunnhildur Gunnarsdóttir tilkynnt félagsskipti yfir í Hauka. Þetta kemur fram á www.haukar.is
„Ég er mjög sáttur við að fá þessar stelpur til mín, þetta eru duglegir leikmenn og eiga örugglega eftir að setja mark sitt á Haukaliðið á næsta ári og vonandi hjálpa Haukum að ná langt á næstu árum,” sagði Henning Henningsson þjálfari Haukaliðsins þegar heimasíðan heyrði í honum.
Ljósmynd/ Unnur Lára ásamt Reyni Kristjánssyni formanni mfl. ráðs kvenna



