HomeFréttirTveir sigrar á einum degi hjá U 16 ára liðinu

Tveir sigrar á einum degi hjá U 16 ára liðinu

 
Sigur liðsheildarinnar var það hjá 16 ára karlaliði Íslands sem rassskellti í dag Finna 74-47 og því eru piltarnir í lykilstöðu fyrir næstu tvo leiki. Íslensku strákarnir í 16 ára liðinu fóru á kostum og í sínum öðrum leik í dag voru Finnar engin fyrirstaða og ljóst að strákarnir eru allir í feiknastuði. Matthías Orri Sigurðarson var stigahæstur í íslenska liðinu með 13 stig og Emil Karel Einarsson gerði 11 stig og tók 8 fráköst.
Óskabyrjun U 16 ára landsliðs Íslands gegn Finnum á Norðurlandamótinu kom þeim í 25-10 að loknum fyrsta leikhluta. Piltarnir gerðu hreinlega allt rétt! Ísland komst í 9-0 og svo 13-2 áður en Finnar tóku leikhlé til þess að átta sig á því hvað hreinlega væri í gangi. Íslendingar stigu vel út og fráköstuðu allir sem einn en þar fór Stefán Karel Torfason fremstur í flokki.
 
Maciej Baginski tók nokkrar fínar rispur í fyrsta leikhluta og svo komu þeir Matthías Orri og Sigurður Dagur líflegir inn af bekknum og voru alls ekki síðri en þeir byrjunarliðsmenn sem þeir skiptu við. Allir í dúndrandi takt og staðan 25-10 fyrir Ísland eftir fyrsta leikhluta.
 
Adam var ekki lengi í Paradís því Finnar mættu brjálaðir inn í annan leikhluta og gerðu 11 stig í röð áður en Ísland náði að skora og þá höfðu liðið fjórar og hálf mínúta. Finnar minnkuðu muninn 27-24 en þá rönkuðu íslensku piltarnir við sér á nýjan leik og juku muninn. Ísland skipti í svæðisvörn seint í öðrum leikhluta og það gaf vel og staðan 38-26 fyrir Ísland í hálfleik.
 
Stefán Karel Torfason var með 8 stig og 10 fráköst hjá Íslandi í hálfleik og Emil Karel Einarsson var með 9 stig og 5 fráköst.
 
Lítið var skorað í upphafi síðari hálfleiks en Sigurður Dagur Sturluson skellti niður þrist sem breytti stöðunni í 43-31 og Íslendingar höfðu tökin á leiknum. Eftir því sem á leið jókst forskot Íslands og fyrir vikið léku Finnar stífar og nokkrum sinnum gerðust þeir sekir um háskaleik sem fékk að viðgangast órefsað. Íslendingar leiddu svo 50-35 fyrir fjórða og síðasta leikhluta og fátt í spilunum sem benti til þess að Finnar gætu ógnað forskotinu.
 
Fjórði leikhluti var svo ekki ósvipaður þeim fyrsta, Íslendingar sýndu allar sínar bestu hliðar og keyrðu Finna í kaf. Lokatölur reyndust 74-47 Íslandi í vil og því tveir sigurleikir í höfn hjá þessum sterku strákum á þeirra fyrsta keppnisdegi á Norðurlandamótinu.
 
Matthías Orri Sigurðarson var stigahæstur í íslenska liðinu með 13 stig og 3 fráköst. Emil Karel Einarsson gerði 11 stig og tók 8 fráköst og Stefán Karel Torfason gerði 8 stig og tók 15 fráköst og batt saman íslenska teiginn með magnaðri baráttu en þessi öflugi Norðanstrákur var einnig með 3 varin skot og 2 stoðsendingar. Fleiri áttu góða spretti í dag eins og Sigurður Dagur Sturluson, Martin Hermannsson og Valur Orri Valsson en sé öllu á botninn hvolft var þetta fyrst og fremst sigur sterkrar liðsheildar.
 
Ljósmynd/ Stefán Karel Torfason sækir að körfu Finna en Stefán átti magnaðan dag í íslenska liðinu og batt saman vörnina með kraftmiklum leik.
 
Fréttir
- Auglýsing -