Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur samið við Arnar Freyr Jónsson um að leika með Keflavík næstu tvö árin. Samningur þess efnis var undirritaður í gærkvöld, en Arnar hefur leikið með Grindvíkingum síðustu tvö tímabil. Þá framlengdi Jón N. Hafsteinsson til tveggja ára í Toyota-höllinni. Frá þessu er greint á heimasíðu Keflavíkur, www.keflavik.is
Arnar er ekki ókunnur aðstæðum í Keflavík, en hann er uppalinn Keflvíkingur og spilaði með meistaraflokk karla á árunum 2000-2008. Á því tímabili varð hann 4 sinnum Íslandsmeistari og tvisvar sinnum bikarmeistari. Ljóst er að Arnar mun verða mikill styrkur fyrir Keflavíkurliðið á næstu leiktíð, en útlit er fyrir að liðið haldist óbreytt frá liðinni leiktíð, fyrir utan Sverrir Þór Sverrisson, sem eins og kunnugt er hefur ákveðið að hefja þjálfun hjá kvennaliði Njarðvíkur.
Jón Norðdal Hafsteinsson framlengdi sínum samning um 2 ár í kvöld. Jón hefur leikið með Keflvíkingum frá blautu barnsbeini, en hann hóf að spila með meistaraflokki Keflavíkur árið 1997.
Ljósmynd/ Heimasíða Keflavíkur: Frá undirritun samninga í gærkvöld. Frá vinstri: Guðjón Skúlason (þjálfari), Jón Norðdal Hafsteinsson, Arnar Freyr Jónsson og Margeir Elentínusson (Formaður KKD Keflavíkur).



