Körfuknattleiksdeild Skallagríms undirbýr nú baráttu komandi vetrar í fyrstu deild karla. Stjórn KKD Skallagríms skrifaði í gær undir samning við átta leikmenn. Áður hafði Hafþór Ingi Gunnarsson endurnýjað samning sinn við Skallana. Þetta kemur fram á www.skallagrimur.is
Halldór Gunnar Jónsson lék með Skagamönnum í fyrstu deildinni síðasta vetur en skrifaði í gær undir samning við Skallana. Halldór er hörku skytta og styrkir raðir Skallagrímsmanna mikið.
Þá endurnýjaði kempan Óðinn Guðmundsson samning sinn við Skallagrím auk þess sem hinn bráðefnilegi Einar Ólafsson frá Gilsbakka, sem lék með Reykdælum síðasta vetur, gekk í raðir Skallagríms. Þá skrifuðu undir samning fimm ungir og efnilegir leikmenn sem spiluðu allir með drengjaflokk Skallagríms og komu einnig við sögu hjá mfl. síðasta vetur þeir Elfar Már Ólafsson, Birgir Sverrisson, Davíð Guðmundsson og Andrés Kristjánsson. Þá gekk Davíð Ásgeirsson frá Varmalandi í raðir Skallgríms en hann lék með drengjaflokki ÍA á síðasta tímabili. Fleiri leikmenn eru í sigtinu hjá stjórn og þjálfara og skýrist það á næstu vikum.
Ljósmynd/ Stefán Þór Borgþórsson – [email protected]– Halldór Gunnar Jónsson kveður Skipaskaga og heldur í Borgarnes.



