Samkvæmt öruggum heimildum Morgunblaðsins hefur Ingvaldur Magni Hafsteinsson hug á því að flytja aftur í Stykkishólm og ganga til liðs við sína gömlu samherja í Snæfelli. Þetta kemur fram á www.mbl.is
Magni er uppalinn í Ólafsvík og þekkir vel til fyrir vestan en lék með Fjölni á síðustu leiktíð. Íslands- og bikarmeistararnir hafa misst bæði Hlyn Bæringsson og Martins Berkis.
Magni er menntaður lögreglumaður og hefur sótt um laust starf í Stykkishólmi. Það gæti því oltið á embætti Ríkislögreglustjóra hvort Snæfell fær þennan liðsstyrk.
Ljósmynd/ Jón Björn Ólafsson – [email protected] – Ingvaldur Magni í leik með Fjölni á síðustu leiktíð.



